← Zechariah (5/14) → |
1. | Ég hóf aftur upp augu mín og sá bókrollu, sem var á flugi. |
2. | Þá sagði hann við mig: ,,Hvað sér þú?`` Ég svaraði: ,,Ég sé bókrollu á flugi, tuttugu álna langa og tíu álna breiða.`` |
3. | Þá sagði hann við mig: ,,Þetta er bölvunin, sem út gengur yfir gjörvallt landið, því að sérhverjum sem stelur, verður samkvæmt henni sópað héðan, og sérhverjum sem meinsæri fremur, verður samkvæmt henni sópað héðan.`` |
4. | Ég hefi látið hana út ganga _ segir Drottinn allsherjar _ til þess að hún komi inn í hús þjófsins og inn í hús þess, sem meinsæri fremur við nafn mitt, og staðnæmist inni í húsi hans og eyði því bæði að viðum og veggjum. |
5. | Þessu næst gekk fram engillinn, er við mig talaði, og sagði við mig: ,,Hef upp augu þín og sjá, hvað þar kemur fram!`` |
6. | Ég sagði: ,,Hvað er þetta?`` Þá sagði hann: ,,Þetta er efan, sem kemur í ljós.`` Þá sagði hann: ,,Þetta er misgjörð þeirra í öllu landinu.`` |
7. | Þá lyftist allt í einu upp kringlótt blýlok, og sat þar kona ein niðri í efunni. |
8. | Þá sagði hann: ,,Þetta er Vonskan!`` _ kastaði henni ofan í efuna og kastaði blýlokinu ofan yfir opið. |
9. | Síðan hóf ég upp augu mín og sá allt í einu tvær konur koma fram, og stóð vindur undir vængi þeim _ því að þær höfðu vængi sem storksvængi _ og hófu þær efuna upp milli jarðar og himins. |
10. | Þá sagði ég við engilinn, sem við mig talaði: ,,Hvert fara þær með efuna?``Hann svaraði mér: ,,Þær ætla að reisa henni hús í Sínearlandi, og þegar það er búið, þá setja þær hana þar á sinn stað.`` |
11. | Hann svaraði mér: ,,Þær ætla að reisa henni hús í Sínearlandi, og þegar það er búið, þá setja þær hana þar á sinn stað.`` |
← Zechariah (5/14) → |