← Zechariah (4/14) → |
1. | Þá vakti engillinn, er við mig talaði, mig aftur, eins og þegar maður er vakinn af svefni, |
2. | og sagði við mig: ,,Hvað sér þú?`` Ég svaraði: ,,Ég sé ljósastiku, og er öll af gulli. Ofan á henni er olíuskál og á henni eru sjö lampar og sjö pípur fyrir lampana. |
3. | Og hjá ljósastikunni standa tvö olíutré, annað hægra megin við olíuskálina, hitt vinstra megin.`` |
4. | Þá tók ég til máls og sagði við engilinn, sem við mig talaði: ,,Hvað merkir þetta, herra minn?`` |
5. | Og engillinn, sem við mig talaði, svaraði og sagði við mig: ,,Veistu ekki, hvað þetta merkir?`` Ég svaraði: ,,Nei, herra minn!`` |
6. | Þá tók hann til máls og sagði við mig: ,,Þetta eru orð Drottins til Serúbabels: Ekki með valdi né krafti, heldur fyrir anda minn! _ segir Drottinn allsherjar. |
7. | Hver ert þú, stóra fjall? Fyrir Serúbabel skalt þú verða að sléttu. Og hann mun færa út hornsteininn, og þá munu kveða við fagnaðaróp: Dýrlegur, dýrlegur er hann!`` |
8. | Og orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi: |
9. | Hendur Serúbabels hafa lagt grundvöll þessa húss, hendur hans munu og fullgjöra það. Og þá skaltu viðurkenna, að Drottinn allsherjar hefir sent mig til yðar. |
10. | Því að allir þeir, sem lítilsvirða þessa litlu byrjun, munu horfa fagnandi á blýlóðið í hendi Serúbabels. Þessir sjö lampar eru augu Drottins, sem líta yfir gjörvalla jörðina. |
11. | Þá tók ég til máls og sagði við hann: ,,Hvað merkja þessi tvö olíutré, hægra og vinstra megin ljósastikunnar?`` |
12. | Og ég tók annað sinn til máls og sagði við hann: ,,Hvað merkja þær tvær olíuviðargreinar, sem eru við hliðina á þeim tveimur gullpípum, sem láta olífuolíu streyma út úr sér?`` |
13. | Þá sagði hann við mig: ,,Veistu ekki, hvað þær merkja?`` Ég svaraði: ,,Nei, herra minn!``Þá sagði hann: ,,Það eru þeir tveir smurðu, er standa frammi fyrir Drottni gjörvallrar jarðarinnar.`` |
14. | Þá sagði hann: ,,Það eru þeir tveir smurðu, er standa frammi fyrir Drottni gjörvallrar jarðarinnar.`` |
← Zechariah (4/14) → |