← Romans (3/16) → |
1. | Hvað hefur þá Gyðingurinn fram yfir? Eða hvert er gagn umskurnarinnar? |
2. | Mikið á allan hátt. Fyrst er þá það, að þeim hefur verið trúað fyrir orðum Guðs. |
3. | Hvað um það, þótt nokkrir hafi reynst ótrúir? Mundi ótrúmennska þeirra að engu gjöra trúfesti Guðs? |
4. | Fjarri fer því. Guð skal reynast sannorður, þótt hver maður reyndist lygari, eins og ritað er: ,,Til þess að þú reynist réttlátur í orðum þínum og vinnir, þegar þú átt mál að verja.`` |
5. | En ef ranglæti vort sannar réttlæti Guðs, hvað eigum vér þá að segja? Hvort mundi Guð vera ranglátur, er hann lætur reiðina yfir dynja? _ Ég tala á mannlegan hátt. _ |
6. | Fjarri fer því. Hvernig ætti Guð þá að dæma heiminn? |
7. | En verði sannleiki Guðs fyrir lygi mína skýrari honum til dýrðar, hvers vegna dæmist ég þá enn sem syndari? |
8. | Eigum vér þá ekki að gjöra hið illa, til þess að hið góða komi fram? Sumir bera oss þeim óhróðri að vér kennum þetta. Þeir munu fá verðskuldaðan dóm. |
9. | Hvað þá? Höfum vér þá nokkuð fram yfir? Nei, alls ekki. Vér höfum áður gefið bæði Gyðingum og Grikkjum að sök, að þeir væru allir undir synd. |
10. | Eins og ritað er: Ekki er neinn réttlátur, ekki einn. |
11. | Ekki er neinn vitur, ekki neinn sem leitar Guðs. |
12. | Allir eru þeir fallnir frá, allir saman ófærir orðnir. Ekki er neinn sem auðsýnir gæsku, ekki einn einasti. |
13. | Opin gröf er barki þeirra, með tungum sínum draga þeir á tálar. Höggorma eitur er innan vara þeirra, |
14. | munnur þeirra er fullur bölvunar og beiskju. |
15. | Hvatir eru þeir í spori að úthella blóði. |
16. | Tortíming og eymd er í slóð þeirra, |
17. | og veg friðarins þekkja þeir ekki. |
18. | Fyrir augum þeirra er enginn guðsótti. |
19. | Vér vitum, að allt sem lögmálið segir, það talar það til þeirra sem eru undir lögmálinu, til þess að sérhver munnur þagni og allur heimurinn verði sekur fyrir Guði, |
20. | með því að enginn lifandi maður réttlætist fyrir honum af lögmálsverkum. En fyrir lögmál kemur þekking syndar. |
21. | En nú hefur réttlæti Guðs, sem lögmálið og spámennirnir vitna um, verið opinberað án lögmáls. |
22. | Það er: Réttlæti Guðs fyrir trú á Jesú Krist öllum þeim til handa, sem trúa. Hér er enginn greinarmunur: |
23. | Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð, |
24. | og þeir réttlætast án verðskuldunar af náð hans fyrir endurlausnina, sem er í Kristi Jesú. |
25. | Guð setti hann fram, að hann með blóði sínu væri sáttarfórn þeim sem trúa. Þannig sýndi Guð réttlæti sitt, því að hann hafði í umburðarlyndi sínu umborið hinar áður drýgðu syndir, |
26. | til þess að auglýsa réttlæti sitt á yfirstandandi tíma, að hann sé sjálfur réttlátur og réttlæti þann, sem trúir á Jesú. |
27. | Hvar er þá hrósunin? Hún er úti lokuð. Með hvaða lögmáli? Verkanna? Nei, heldur með lögmáli trúar. |
28. | Vér ályktum því, að maðurinn réttlætist af trú án lögmálsverka. |
29. | Eða er Guð einungis Guð Gyðinga? Ekki líka heiðingja? Jú, líka heiðingja; |
30. | svo sannarlega sem Guð er einn, sem mun réttlæta umskorna menn af trú og óumskorna fyrir trúna.Gjörum vér þá lögmálið að engu með trúnni? Fjarri fer því. Vér staðfestum lögmálið. |
31. | Gjörum vér þá lögmálið að engu með trúnni? Fjarri fer því. Vér staðfestum lögmálið. |
← Romans (3/16) → |