← Romans (12/16) → |
1. | Því brýni ég yður, bræður, að þér, vegna miskunnar Guðs, bjóðið fram sjálfa yður að lifandi, heilagri, Guði þóknanlegri fórn. Það er sönn og rétt guðsdýrkun af yðar hendi. |
2. | Hegðið yður eigi eftir öld þessari, heldur takið háttaskipti með endurnýjung hugarfarsins, svo að þér fáið að reyna, hver sé vilji Guðs, hið góða, fagra og fullkomna. |
3. | Fyrir þá náð, sem mér er gefin, segi ég yður hverjum og einum að hugsa ekki hærra um sig en hugsa ber, heldur í réttu hófi, og halda sér hver og einn við þann mæli trúar, sem Guð hefur úthlutað honum. |
4. | Vér höfum á einum líkama marga limi, en limirnir hafa ekki allir sama starfa. |
5. | Eins erum vér, þótt margir séum, einn líkami í Kristi, en hver um sig annars limir. |
6. | Vér höfum margvíslegar náðargjafir, eftir þeirri náð, sem oss er gefin. Sé það spádómsgáfa, þá notum hana í hlutfalli við trúna. |
7. | Sé það þjónusta, skulum vér þjóna. Sá sem kennir, hann kenni, |
8. | sá sem áminnir, hann áminni. Sá sem útbýtir gjöfum, gjöri það í einlægni. Sá sem veitir forstöðu, sé kostgæfinn og sá sem iðkar miskunnsemi, gjöri það með gleði. |
9. | Elskan sé flærðarlaus. Hafið andstyggð á hinu vonda, en haldið fast við hið góða. |
10. | Sýnið hver öðrum bróðurkærleika og ástúð, og verið hver yðar fyrri til að veita öðrum virðing. |
11. | Verið ekki hálfvolgir í áhuganum, verið brennandi í andanum. Þjónið Drottni. |
12. | Verið glaðir í voninni, þolinmóðir í þjáningunni og staðfastir í bæninni. |
13. | Takið þátt í þörfum heilagra, stundið gestrisni. |
14. | Blessið þá, er ofsækja yður, blessið þá, en bölvið þeim ekki. |
15. | Fagnið með fagnendum, grátið með grátendum. |
16. | Berið sama hug til allra, hreykið yður ekki, en haldið yður að hinum lítilmótlegu. Ætlið yður ekki hyggna með sjálfum yður. |
17. | Gjaldið engum illt fyrir illt. Stundið það sem fagurt er fyrir sjónum allra manna. |
18. | Hafið frið við alla menn að því leyti sem það er unnt og á yðar valdi. |
19. | Hefnið yðar ekki sjálfir, þér elskaðir, heldur lofið hinni refsandi reiði Guðs að komast að, því að ritað er: ,,Mín er hefndin, ég mun endurgjalda, segir Drottinn.`` |
20. | En ,,ef óvin þinn hungrar, þá gef honum að eta, ef hann þyrstir, þá gef honum að drekka. Með því að gjöra þetta, safnar þú glóðum elds á höfuð honum.``Lát ekki hið vonda yfirbuga þig, heldur sigra þú illt með góðu. |
21. | Lát ekki hið vonda yfirbuga þig, heldur sigra þú illt með góðu. |
← Romans (12/16) → |