← Revelation (22/22) |
1. | Og hann sýndi mér móðu lífsvatnsins, skínandi sem kristall. Hún rann frá hásæti Guðs og lambsins. |
2. | Á miðju stræti borgarinnar, beggja vegna móðunnar, var lífsins tré, sem ber tólf sinnum ávöxt. Á mánuði hverjum gefur það ávöxt sinn, og blöð trésins eru til lækningar þjóðunum. |
3. | Og engin bölvun mun framar til vera. Og hásæti Guðs og lambsins mun í borginni vera og þjónar hans munu honum þjóna. |
4. | Þeir munu sjá ásjónu hans og nafn hans mun vera á ennum þeirra. |
5. | Og nótt mun ekki framar til vera og þeir þurfa ekki lampaljós né sólarljós, því að Drottinn Guð skín á þá og þeir munu ríkja um aldir alda. |
6. | Og hann sagði við mig: ,,Þessi orð eru trú og sönn. Og Drottinn, Guð anda spámannanna, sendi engil sinn til að sýna þjónum sínum það, sem verða á innan skamms. |
7. | Sjá, ég kem skjótt. Sæll er sá, sem varðveitir spádómsorð þessarar bókar.`` |
8. | Og ég, Jóhannes, er sá sem heyrði og sá þetta. Og er ég hafði heyrt það og séð, féll ég niður til að tilbiðja fyrir fótum engilsins, sem sýndi mér þetta. |
9. | Og hann segir við mig: ,,Varastu þetta! Ég er samþjónn þinn og bræðra þinna, spámannanna, og þeirra, sem varðveita orð þessarar bókar. Tilbið þú Guð.`` |
10. | Og hann segir við mig: ,,Innsigla þú ekki spádómsorð þessarar bókar, því að tíminn er í nánd. |
11. | Hinn rangláti haldi áfram að fremja ranglæti og hinn saurugi saurgi sig áfram og hinn réttláti stundi áfram réttlæti og hinn heilagi helgist áfram. |
12. | Sjá, ég kem skjótt, og launin hef ég með mér, til að gjalda hverjum og einum eins og verk hans er. |
13. | Ég er Alfa og Ómega, hinn fyrsti og hinn síðasti, upphafið og endirinn. |
14. | Sælir eru þeir, sem þvo skikkjur sínar. Þeir fá aðgang að lífsins tré og mega ganga um hliðin inn í borgina. |
15. | Úti gista hundarnir og töframennirnir og frillulífismennirnir og manndrápararnir og skurðgoðadýrkendurnir og hver sem elskar og iðkar lygi. |
16. | Ég, Jesús, hef sent engil minn til að votta fyrir yður þessa hluti í söfnuðunum. Ég er rótarkvistur af kyni Davíðs, stjarnan skínandi, morgunstjarnan.`` |
17. | Og andinn og brúðurin segja: ,,Kom þú!`` Og sá sem heyrir segi: ,,Kom þú!`` Og sá sem þyrstur er, hann komi. Hver sem vill, hann fær ókeypis lífsins vatn. |
18. | Ég votta fyrir hverjum þeim manni, sem heyrir spádómsorð þessarar bókar, að leggi nokkur við þau, mun Guð á hann leggja þær plágur, sem um er ritað í þessari bók. |
19. | Og taki nokkur burt nokkuð af orðum spádómsbókar þessarar, þá mun Guð burt taka hlut hans í tré lífsins og í borginni helgu, sem um er ritað í þessari bók.Sá sem þetta vottar segir: ,,Já, ég kem skjótt.`` Amen. Kom þú, Drottinn Jesús! |
20. | Sá sem þetta vottar segir: ,,Já, ég kem skjótt.`` Amen. Kom þú, Drottinn Jesús! |
← Revelation (22/22) |