← Revelation (19/22) → |
1. | Eftir þetta heyrði ég sem sterkan ym mikils fjölda á himni. Þeir sögðu: ,,Hallelúja! Hjálpræðið og dýrðin og mátturinn er Guðs vors. |
2. | Sannir og réttlátir eru dómar hans. Hann hefur dæmt skækjuna miklu, sem jörðunni spillti með saurlifnaði sínum, og hann hefur látið hana sæta hefnd fyrir blóð þjóna sinna.`` |
3. | Og aftur var sagt: ,,Hallelúja! Reykurinn frá henni stígur upp um aldir alda.`` |
4. | Og öldungarnir tuttugu og fjórir og verurnar fjórar féllu fram og tilbáðu Guð, sem í hásætinu situr, og sögðu: ,,Amen, hallelúja!`` |
5. | Og frá hásætinu barst rödd, er sagði: ,,Lofsyngið Guði vorum, allir þér þjónar hans, þér sem hann óttist, smáir og stórir.`` |
6. | Þá heyrði ég raddir sem frá miklum mannfjölda og sem nið margra vatna og sem gný frá sterkum þrumum. Þær sögðu: ,,Hallelúja, Drottinn Guð vor, hinn alvaldi, er konungur orðinn. |
7. | Gleðjumst og fögnum og gefum honum dýrðina, því að komið er að brúðkaupi lambsins og brúður hans hefur búið sig. |
8. | Henni var fengið skínandi og hreint lín til að skrýðast í. Línið er réttlætisverk heilagra.`` |
9. | Og hann segir við mig: ,,Rita þú: Sælir eru þeir, sem boðnir eru í brúðkaupsveislu lambsins.`` Og hann segir við mig: ,,Þetta eru hin sönnu orð Guðs.`` |
10. | Og ég féll fram fyrir fætur honum til að tilbiðja hann og hann segir við mig: ,,Varastu þetta! Ég er samþjónn þinn og bræðra þinna, sem hafa vitnisburð Jesú. Tilbið þú Guð. Vitnisburður Jesú er andi spádómsgáfunnar.`` |
11. | Þá sá ég himininn opinn, og sjá: Hvítur hestur. Sá, sem á honum sat, heitir Trúr og Sannur, hann dæmir og berst með réttvísi. |
12. | Augu hans eru sem eldslogi og á höfði hans eru mörg ennisdjásn. Og hann ber nafn ritað, sem enginn þekkir nema hann sjálfur. |
13. | Hann er skrýddur skikkju, blóði drifinni, og nafn hans er: Orðið Guðs. |
14. | Og hersveitirnar, sem á himni eru, fylgdu honum á hvítum hestum, klæddar hvítu og hreinu líni. |
15. | Og af munni hans gengur út biturt sverð að slá þjóðirnar með, og hann stjórnar þeim með járnsprota. Og hann treður vínþröng heiftarreiði Guðs hins alvalda. |
16. | Og á skikkju sinni og lend sinni hefur hann ritað nafn: ,,Konungur konunga og Drottinn drottna.`` |
17. | Og ég sá einn engil, sem stóð á sólunni. Hann hrópaði hárri röddu til allra fuglanna, sem flugu um himinhvolfið: ,,Komið, safnist saman til hinnar miklu máltíðar Guðs |
18. | til þess að eta hold konunga og hold herforingja og hold kappa og hold hesta og þeirra, sem á þeim sitja, og hold allra, bæði frjálsra og ófrjálsra, smárra og stórra.`` |
19. | Og ég sá dýrið og konunga jarðarinnar og hersveitir þeirra safnaðar saman til að heyja stríð við þann, sem á hestinum sat, og við herlið hans. |
20. | Og dýrið var handtekið og ásamt því falsspámaðurinn, sem táknin gjörði í augsýn þess, en með þeim leiddi hann afvega þá, sem tekið höfðu við merki dýrsins, og þá, sem tilbeðið höfðu líkneski þess. Báðum þeim var kastað lifandi í eldsdíkið, sem logar af brennisteini.Og hinir voru drepnir með sverði þess, er á hestinum sat, sverðinu, sem út gekk af munni hans, og allir fuglarnir söddust af hræjum þeirra. |
21. | Og hinir voru drepnir með sverði þess, er á hestinum sat, sverðinu, sem út gekk af munni hans, og allir fuglarnir söddust af hræjum þeirra. |
← Revelation (19/22) → |