← Psalms (98/150) → |
1. | Sálmur. Syngið Drottni nýjan söng, því að hann hefir gjört dásemdarverk, hægri hönd hans hjálpaði honum og hans heilagi armleggur. |
2. | Drottinn hefir kunngjört hjálpræði sitt, fyrir augum þjóðanna opinberaði hann réttlæti sitt. |
3. | Hann minntist miskunnar sinnar við Jakob og trúfesti sinnar við Ísraels ætt. Öll endimörk jarðar sáu hjálpræði Guðs vors. |
4. | Látið gleðióp gjalla fyrir Drottni, öll lönd, hefjið gleðisöng, æpið fagnaðaróp og lofsyngið. |
5. | Leikið fyrir Drottni á gígju, á gígju með lofsöngshljómi, |
6. | með lúðrum og básúnuhljómi, látið gleðióp gjalla fyrir konunginum Drottni. |
7. | Hafið drynji og allt sem í því er, heimurinn og þeir sem í honum lifa. |
8. | Fljótin skulu klappa lof í lófa, fjöllin fagna öll samanfyrir Drottni sem kemur til að dæma jörðina. Hann dæmir heiminn með réttlæti og þjóðirnar með réttvísi. |
9. | fyrir Drottni sem kemur til að dæma jörðina. Hann dæmir heiminn með réttlæti og þjóðirnar með réttvísi. |
← Psalms (98/150) → |