← Psalms (97/150) → |
1. | Drottinn er konungur orðinn! jörðin fagni, eyjafjöldinn gleðjist. |
2. | Ský og sorti eru umhverfis hann, réttlæti og réttvísi eru grundvöllur hásætis hans, |
3. | eldur fer fyrir honum og bálast umhverfis spor hans. |
4. | Leiftur hans lýsa um jarðríki, jörðin sér það og nötrar. |
5. | Björgin bráðna sem vax fyrir Drottni, fyrir Drottni gjörvallrar jarðarinnar. |
6. | Himnarnir kunngjöra réttlæti hans, og allar þjóðir sjá dýrð hans. |
7. | Allir skurðgoðadýrkendur verða til skammar, þeir er stæra sig af falsguðunum. Allir guðir falla fram fyrir honum. |
8. | Síon heyrir það og gleðst, Júdadætur fagna sakir dóma þinna, Drottinn. |
9. | Því að þú, Drottinn, ert Hinn hæsti yfir gjörvallri jörðunni, þú ert hátt hafinn yfir alla guði. |
10. | Drottinn elskar þá er hata hið illa, hann verndar sálir dýrkenda sinna, frelsar þá af hendi óguðlegra. |
11. | Ljós rennur upp réttlátum og gleði hjartahreinum.Gleðjist, þér réttlátir, yfir Drottni, vegsamið hans heilaga nafn. |
12. | Gleðjist, þér réttlátir, yfir Drottni, vegsamið hans heilaga nafn. |
← Psalms (97/150) → |