← Psalms (96/150) → |
1. | Syngið Drottni nýjan söng, syngið Drottni öll lönd! |
2. | Syngið Drottni, lofið nafn hans, kunngjörið hjálpráð hans dag eftir dag. |
3. | Segið frá dýrð hans meðal þjóðanna, frá dásemdarverkum hans meðal allra lýða. |
4. | Því að mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur, óttalegur er hann öllum guðum framar. |
5. | Því að allir guðir þjóðanna eru falsguðir, en Drottinn hefir gjört himininn. |
6. | Heiður og vegsemd eru fyrir augliti hans, máttur og prýði í helgidómi hans. |
7. | Tjáið Drottni lof, þér kynkvíslir þjóða, tjáið Drottni vegsemd og vald. |
8. | Tjáið Drottni dýrð þá, er nafni hans hæfir, færið gjafir og komið til forgarða hans, |
9. | fallið fram fyrir Drottni í helgum skrúða, titrið fyrir honum, öll lönd! |
10. | Segið meðal þjóðanna: Drottinn er konungur orðinn! Hann hefir fest jörðina, svo að hún bifast ekki, hann dæmir þjóðirnar með réttvísi. |
11. | Himinninn gleðjist og jörðin fagni, hafið drynji og allt sem í því er, |
12. | foldin fagni og allt sem á henni er, öll tré skógarins kveði fagnaðaróp,fyrir Drottni, því að hann kemur, hann kemur til þess að dæma jörðina. Hann mun dæma heiminn með réttlæti og þjóðirnar eftir trúfesti sinni. |
13. | fyrir Drottni, því að hann kemur, hann kemur til þess að dæma jörðina. Hann mun dæma heiminn með réttlæti og þjóðirnar eftir trúfesti sinni. |
← Psalms (96/150) → |