← Psalms (95/150) → |
1. | Komið, fögnum fyrir Drottni, látum gleðióp gjalla fyrir kletti hjálpræðis vors. |
2. | Komum með lofsöng fyrir auglit hans, syngjum gleðiljóð fyrir honum. |
3. | Því að Drottinn er mikill Guð og mikill konungur yfir öllum guðum. |
4. | Í hans hendi eru jarðardjúpin, og fjallatindarnir heyra honum til. |
5. | Hans er hafið, hann hefir skapað það, og hendur hans mynduðu þurrlendið. |
6. | Komið, föllum fram og krjúpum niður, beygjum kné vor fyrir Drottni, skapara vorum, |
7. | því að hann er vor Guð, og vér erum gæslulýður hans og hjörð sú, er hann leiðir. Ó að þér í dag vilduð heyra raust hans! |
8. | Herðið eigi hjörtu yðar eins og hjá Meríba, eins og daginn við Massa í eyðimörkinni, |
9. | þegar feður yðar freistuðu mín, reyndu mig, þótt þeir sæju verk mín. |
10. | Í fjörutíu ár hafði ég viðbjóð á þessari kynslóð, og ég sagði: ,,Þeir eru andlega villtur lýður og þekkja ekki vegu mína.``Þess vegna sór ég í reiði minni: ,,Þeir skulu eigi ganga inn til hvíldar minnar.`` |
11. | Þess vegna sór ég í reiði minni: ,,Þeir skulu eigi ganga inn til hvíldar minnar.`` |
← Psalms (95/150) → |