← Psalms (94/150) → |
1. | Drottinn, Guð hefndarinnar, Guð hefndarinnar, birst þú í geisladýrð! |
2. | Rís þú upp, dómari jarðar, endurgjald ofstopamönnunum það er þeir hafa aðhafst! |
3. | Hversu lengi, Drottinn, eiga illir menn, hversu lengi, Drottinn, eiga illir menn að fagna? |
4. | Þeir ausa úr sér drambyrðum, allir illvirkjarnir rembast. |
5. | Þeir kremja lýð þinn, Drottinn, þjá arfleifð þína, |
6. | drepa ekkjur og aðkomandi og myrða föðurlausa |
7. | og segja: ,,Drottinn sér það ekki, Jakobs Guð tekur eigi eftir því.`` |
8. | Takið eftir, þér hinir fíflsku meðal lýðsins, og þér fáráðlingar, hvenær ætlið þér að verða hyggnir? |
9. | Mun sá eigi heyra, sem eyrað hefir plantað, mun sá eigi sjá, sem augað hefir til búið? |
10. | Skyldi sá er agar þjóðirnar eigi hegna, hann sem kennir mönnunum þekkingu? |
11. | Drottinn þekkir hugsanir mannsins, að þær eru einber hégómi. |
12. | Sæll er sá maður, er þú agar, Drottinn, og fræðir í lögmáli þínu, |
13. | til þess að hlífa honum við mótlætisdögunum, uns gröf er grafin fyrir óguðlega. |
14. | Því að Drottinn hrindir eigi burt lýð sínum og yfirgefur eigi arfleifð sína, |
15. | heldur mun rétturinn hverfa aftur til hins réttláta, og honum munu allir hjartahreinir fylgja. |
16. | Hver rís upp mér til hjálpar gegn illvirkjunum, hver gengur fram fyrir mig gegn illgjörðamönnunum? |
17. | Ef Drottinn veitti mér eigi fulltingi, þá mundi sál mín brátt hvíla í dauðaþögn. |
18. | Þegar ég hugsaði: ,,Mér skriðnar fótur,`` þá studdi mig miskunn þín, Drottinn. |
19. | Þegar miklar áhyggjur lögðust á hjarta mitt, hressti huggun þín sálu mína. |
20. | Mun dómstóll spillingarinnar vera í bandalagi við þig, hann sem býr öðrum tjón undir yfirskini réttarins? |
21. | Þeir ráðast á líf hins réttláta og sakfella saklaust blóð. |
22. | En Drottinn er mér háborg og Guð minn klettur mér til hælis.Hann geldur þeim misgjörð þeirra og afmáir þá í illsku þeirra, Drottinn, Guð vor, afmáir þá. |
23. | Hann geldur þeim misgjörð þeirra og afmáir þá í illsku þeirra, Drottinn, Guð vor, afmáir þá. |
← Psalms (94/150) → |