← Psalms (91/150) → |
1. | Sæll er sá, er situr í skjóli Hins hæsta, sá er gistir í skugga Hins almáttka, |
2. | sá er segir við Drottin: ,,Hæli mitt og háborg, Guð minn, er ég trúi á!`` |
3. | Hann frelsar þig úr snöru fuglarans, frá drepsótt glötunarinnar, |
4. | hann skýlir þér með fjöðrum sínum, undir vængjum hans mátt þú hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og verja. |
5. | Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar, eða örina, sem flýgur um daga, |
6. | drepsóttina, er reikar um í dimmunni, eða sýkina, er geisar um hádegið. |
7. | Þótt þúsund falli þér við hlið og tíu þúsund þér til hægri handar, þá nær það ekki til þín. |
8. | Þú horfir aðeins á með augunum, sér hversu óguðlegum er endurgoldið. |
9. | Þitt hæli er Drottinn, þú hefir gjört Hinn hæsta að athvarfi þínu. |
10. | Engin ógæfa hendir þig, og engin plága nálgast tjald þitt. |
11. | Því að þín vegna býður hann út englum sínum til þess að gæta þín á öllum vegum þínum. |
12. | Þeir munu bera þig á höndum sér, til þess að þú steytir ekki fót þinn við steini. |
13. | Þú skalt stíga ofan á höggorma og nöðrur, troða fótum ljón og dreka. |
14. | ,,Af því að hann leggur ást á mig, mun ég frelsa hann, ég bjarga honum, af því að hann þekkir nafn mitt. |
15. | Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann, ég er hjá honum í neyðinni, ég frelsa hann og gjöri hann vegsamlegan.Ég metta hann með fjöld lífdaga og læt hann sjá hjálpræði mitt.`` |
16. | Ég metta hann með fjöld lífdaga og læt hann sjá hjálpræði mitt.`` |
← Psalms (91/150) → |