← Psalms (90/150) → |
1. | Bæn guðsmannsins Móse. Drottinn, þú hefir verið oss athvarf frá kyni til kyns. |
2. | Áður en fjöllin fæddust og jörðin og heimurinn urðu til, frá eilífð til eilífðar ert þú, ó Guð. |
3. | Þú lætur manninn hverfa aftur til duftsins og segir: ,,Hverfið aftur, þér mannanna börn!`` |
4. | Því að þúsund ár eru í þínum augum sem dagurinn í gær, þegar hann er liðinn, já, eins og næturvaka. |
5. | Þú hrífur þá burt, sem í svefni, þá er að morgni voru sem gróandi gras. |
6. | Að morgni blómgast það og grær, að kveldi fölnar það og visnar. |
7. | Vér hverfum fyrir reiði þinni, skelfumst fyrir bræði þinni. |
8. | Þú hefir sett misgjörðir vorar fyrir augu þér, vorar huldu syndir fyrir ljós auglitis þíns. |
9. | Allir dagar vorir hverfa fyrir reiði þinni, ár vor líða sem andvarp. |
10. | Ævidagar vorir eru sjötíu ár og þegar best lætur áttatíu ár, og dýrsta hnossið er mæða og hégómi, því að þeir líða í skyndi og vér fljúgum burt. |
11. | Hver þekkir styrkleik reiði þinnar og bræði þína, svo sem hana ber að óttast? |
12. | Kenn oss að telja daga vora, að vér megum öðlast viturt hjarta. |
13. | Snú þú aftur, Drottinn. Hversu lengi er þess að bíða, að þú aumkist yfir þjóna þína? |
14. | Metta oss að morgni með miskunn þinni, að vér megum fagna og gleðjast alla daga vora. |
15. | Veit oss gleði í stað daga þeirra, er þú hefir lægt oss, ára þeirra, er vér höfum illt reynt. |
16. | Lát dáðir þínar birtast þjónum þínum og dýrð þína börnum þeirra.Hylli Drottins, Guðs vors, sé yfir oss, styrk þú verk handa vorra. |
17. | Hylli Drottins, Guðs vors, sé yfir oss, styrk þú verk handa vorra. |
← Psalms (90/150) → |