← Psalms (9/150) → |
1. | Til söngstjórans. Almút labben. Davíðssálmur. |
2. | Ég vil lofa þig, Drottinn, af öllu hjarta, segja frá öllum þínum dásemdarverkum. |
3. | Ég vil gleðjast og kætast yfir þér, lofsyngja nafni þínu, þú Hinn hæsti. |
4. | Óvinir mínir hörfuðu undan, hrösuðu og fórust fyrir augliti þínu. |
5. | Já, þú hefir látið mig ná rétti mínum og flutt mál mitt, setst í hásætið sem réttlátur dómari. |
6. | Þú hefir hastað á þjóðirnar, tortímt hinum óguðlegu, afmáð nafn þeirra um aldur og ævi. |
7. | Óvinirnir eru liðnir undir lok _ rústir að eilífu _ og borgirnar hefir þú brotið, minning þeirra er horfin. |
8. | En Drottinn ríkir að eilífu, hann hefir reist hásæti sitt til dóms. |
9. | Hann dæmir heiminn með réttvísi, heldur réttlátan dóm yfir þjóðunum. |
10. | Og Drottinn er vígi orðinn hinum kúguðu, vígi á neyðartímum. |
11. | Þeir er þekkja nafn þitt, treysta þér, því að þú, Drottinn, yfirgefur eigi þá, er þín leita. |
12. | Lofsyngið Drottni, þeim er býr á Síon, gjörið stórvirki hans kunn meðal þjóðanna. |
13. | Því að hann sem blóðs hefnir hefir minnst þeirra, hann hefir eigi gleymt hrópi hinna hrjáðu: |
14. | ,,Líkna mér, Drottinn, sjá þú eymd mína, er hatursmenn mínir baka mér, þú sem lyftir mér upp frá hliðum dauðans, |
15. | að ég megi segja frá öllum lofstír þínum, fagna yfir hjálp þinni í hliðum Síonardóttur.`` |
16. | Lýðirnir eru fallnir í gryfju þá, er þeir gjörðu, fætur þeirra festust í neti því, er þeir lögðu leynt. |
17. | Drottinn er kunnur orðinn: Hann hefir háð dóm, hinn óguðlegi festist í því, er hendur hans höfðu gjört. [Strengjaleikur. Sela] |
18. | Hinir óguðlegu hrapa til Heljar, allar þjóðir er gleyma Guði. |
19. | Hinum snauða verður eigi ávallt gleymt, von hinna hrjáðu bregst eigi sífellt.Rís þú upp, Drottinn! Lát eigi dauðlega menn verða yfirsterkari, lát þjóðirnar hljóta dóm fyrir augliti þínu. [ (Psalms 9:21) Skjót lýðunum skelk í bringu, Drottinn! Lát þá komast að raun um, að þeir eru dauðlegir menn. [Sela] ] |
20. | Rís þú upp, Drottinn! Lát eigi dauðlega menn verða yfirsterkari, lát þjóðirnar hljóta dóm fyrir augliti þínu. [ (Psalms 9:21) Skjót lýðunum skelk í bringu, Drottinn! Lát þá komast að raun um, að þeir eru dauðlegir menn. [Sela] ] |
← Psalms (9/150) → |