← Psalms (88/150) → |
1. | Ljóð. Kóraíta-sálmur. Til söngstjórans. Syngist með Makalat-lagi. Hemans-maskíl Esraíta. |
2. | Drottinn, Guð minn, ég kalla um daga, um nætur hrópa ég frammi fyrir þér. |
3. | Lát bæn mína koma fyrir þig, hneig eyra að hrópi mínu, |
4. | því að sál mín er mett orðin af böli, og líf mitt nálægist Hel. |
5. | Ég er talinn með þeim, sem gengnir eru til grafar, ég er sem magnþrota maður. |
6. | Mér er fenginn bústaður með framliðnum, eins og vegnum mönnum, er liggja í gröfinni, er þú minnist eigi framar, því að þeir eru hrifnir burt úr hendi þinni. |
7. | Þú hefir lagt mig í gryfju undirheima, í myrkrið niðri í djúpinu. |
8. | Reiði þín hvílir á mér, og alla boða þína hefir þú látið skella á mér. [Sela] |
9. | Þú hefir fjarlægt frá mér kunningja mína, gjört mig að andstyggð í augum þeirra. Ég er byrgður inni og kemst ekki út, |
10. | augu mín eru döpruð af eymd. Ég ákalla þig, Drottinn, dag hvern, breiði út hendurnar í móti þér. |
11. | Gjörir þú furðuverk vegna framliðinna, eða munu hinir dauðu rísa upp til þess að lofa þig? [Sela] |
12. | Er sagt frá miskunn þinni í gröfinni, frá trúfesti þinni í undirdjúpunum? |
13. | Eru furðuverk þín kunngjörð í myrkrinu eða réttlæti þitt í landi gleymskunnar? |
14. | En ég hrópa til þín, Drottinn, og á morgnana kemur bæn mín fyrir þig. |
15. | Hví útskúfar þú, Drottinn, sálu minni, hylur auglit þitt fyrir mér? |
16. | Ég er hrjáður og aðþrengdur frá æsku, ég ber skelfingar þínar og er ráðþrota. |
17. | Reiðiblossar þínir ganga yfir mig, ógnir þínar eyða mér.Þær umkringja mig eins og vötn allan liðlangan daginn, lykja um mig allar saman. [ (Psalms 88:19) Þú hefir fjarlægt frá mér ástvini og félaga og gjört myrkrið að kunningja mínum. ] |
18. | Þær umkringja mig eins og vötn allan liðlangan daginn, lykja um mig allar saman. [ (Psalms 88:19) Þú hefir fjarlægt frá mér ástvini og félaga og gjört myrkrið að kunningja mínum. ] |
← Psalms (88/150) → |