← Psalms (86/150) → |
1. | Davíðs-bæn. Hneig eyra þitt, Drottinn, og bænheyr mig, því að ég er hrjáður og snauður. |
2. | Vernda líf mitt, því að ég er helgaður þér, hjálpa þú, Guð minn, þjóni þínum, er treystir þér. |
3. | Ver mér náðugur, Drottinn, því þig ákalla ég allan daginn. |
4. | Gleð þú sál þjóns þíns, því að til þín, Drottinn, hef ég sál mína. |
5. | Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum þeim er ákalla þig. |
6. | Hlýð, Drottinn, á bæn mína og gef gaum grátbeiðni minni. |
7. | Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig, því að þú bænheyrir mig. |
8. | Enginn er sem þú meðal guðanna, Drottinn, og ekkert er sem þín verk. |
9. | Allar þjóðir, er þú hefir skapað, munu koma og falla fram fyrir þér, Drottinn, og tigna nafn þitt. |
10. | Því að þú ert mikill og gjörir furðuverk, þú einn, ó Guð! |
11. | Vísa mér veg þinn, Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum, gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt. |
12. | Ég vil lofa þig, Drottinn, Guð minn, af öllu hjarta og heiðra nafn þitt að eilífu, |
13. | því að miskunn þín er mikil við mig, og þú hefir frelsað sál mína frá djúpi Heljar. |
14. | Ofstopamenn hefjast gegn mér, ó Guð, og hópur ofríkismanna sækist eftir lífi mínu, eigi hafa þeir þig fyrir augum. |
15. | En þú, Drottinn, ert miskunnsamur og líknsamur Guð, þolinmóður og gæskuríkur og harla trúfastur. |
16. | Snú þér að mér og ver mér náðugur, veit þjóni þínum kraft þinn og hjálpa syni ambáttar þinnar.Gjör þú tákn til góðs fyrir mig, að hatursmenn mínir megi horfa á það sneyptir, að þú, Drottinn, hjálpar mér og huggar mig. |
17. | Gjör þú tákn til góðs fyrir mig, að hatursmenn mínir megi horfa á það sneyptir, að þú, Drottinn, hjálpar mér og huggar mig. |
← Psalms (86/150) → |