← Psalms (85/150) → |
1. | Til söngstjórans. Kóraíta-sálmur. |
2. | Þú hefir haft þóknun á landi þínu, Drottinn, snúið við hag Jakobs, |
3. | þú hefir fyrirgefið misgjörð lýðs þíns, hulið allar syndir þeirra. [Sela] |
4. | Þú hefir dregið að þér alla bræði þína, látið af heiftarreiði þinni. |
5. | Snú þér til vor aftur, þú Guð hjálpræðis vors, og lát af gremju þinni í gegn oss. |
6. | Ætlar þú að vera oss reiður um eilífð, láta reiði þína haldast við frá kyni til kyns? |
7. | Vilt þú eigi láta oss lifna við aftur, svo að lýður þinn megi gleðjast yfir þér? |
8. | Lát oss, Drottinn, sjá miskunn þína og veit oss hjálpræði þitt! |
9. | Ég vil hlýða á það sem Guð Drottinn talar. Hann talar frið til lýðs síns og til dýrkenda sinna og til þeirra, er snúa hjarta sínu til hans. |
10. | Já, hjálp hans er nálæg þeim er óttast hann, og vegsemdir munu búa í landi voru. |
11. | Elska og trúfesti mætast, réttlæti og friður kyssast. |
12. | Trúfesti sprettur upp úr jörðunni, og réttlæti lítur niður af himni.Þá gefur og Drottinn gæði, og land vort veitir afurðir sínar. [ (Psalms 85:14) Réttlæti fer fyrir honum, og friður fylgir skrefum hans. ] |
13. | Þá gefur og Drottinn gæði, og land vort veitir afurðir sínar. [ (Psalms 85:14) Réttlæti fer fyrir honum, og friður fylgir skrefum hans. ] |
← Psalms (85/150) → |