← Psalms (84/150) → |
1. | Til söngstjórans. Á gittít. Kóraíta-sálmur. |
2. | Hversu yndislegir eru bústaðir þínir, Drottinn hersveitanna. |
3. | Sálu mína langaði til, já, hún þráði forgarða Drottins, nú fagnar hjarta mitt og hold fyrir hinum lifanda Guði. |
4. | Jafnvel fuglinn hefir fundið hús, og svalan á sér hreiður, þar sem hún leggur unga sína: ölturu þín, Drottinn hersveitanna, konungur minn og Guð minn! |
5. | Sælir eru þeir, sem búa í húsi þínu, þeir munu ætíð lofa þig. [Sela] |
6. | Sælir eru þeir menn, sem finna styrk hjá þér, er þeir hugsa til helgigöngu. |
7. | Er þeir fara gegnum táradalinn, umbreyta þeir honum í vatnsríka vin, og haustregnið færir honum blessun. |
8. | Þeim eykst æ kraftur á göngunni og fá að líta Guð á Síon. |
9. | Drottinn, Guð hersveitanna, heyr bæn mína, hlýð til, þú Jakobs Guð. [Sela] |
10. | Guð, skjöldur vor, sjá og lít á auglit þíns smurða! |
11. | Því að einn dagur í forgörðum þínum er betri en þúsund aðrir, heldur vil ég standa við þröskuldinn í húsi Guðs míns en dvelja í tjöldum óguðlegra.Því að Drottinn Guð er sól og skjöldur, náð og vegsemd veitir Drottinn. Hann synjar þeim engra gæða, er ganga í grandvarleik. [ (Psalms 84:13) Drottinn hersveitanna, sæll er sá maður, sem treystir þér. ] |
12. | Því að Drottinn Guð er sól og skjöldur, náð og vegsemd veitir Drottinn. Hann synjar þeim engra gæða, er ganga í grandvarleik. [ (Psalms 84:13) Drottinn hersveitanna, sæll er sá maður, sem treystir þér. ] |
← Psalms (84/150) → |