← Psalms (83/150) → |
1. | Ljóð. Asafs-sálmur. |
2. | Guð, ver eigi hljóður, ver eigi þögull og hald eigi kyrru fyrir, ó Guð! |
3. | Því sjá, óvinir þínir gjöra hark, og hatursmenn þínir hefja höfuðið, |
4. | þeir bregða á slæg ráð gegn lýð þínum, bera ráð sín saman gegn þeim er þú geymir. |
5. | Þeir segja: ,,Komið, látum oss uppræta þá, svo að þeir séu ekki þjóð framar, og nafns Ísraels verði eigi framar minnst!`` |
6. | Því að þeir hafa einhuga borið saman ráð sín, gegn þér hafa þeir gjört bandalag: |
7. | Edómtjöld og Ísmaelítar, Móab og Hagrítar, |
8. | Gebal, Ammon og Amalek, Filistea ásamt Týrusbúum. |
9. | Assúr hefir einnig gjört bandalag við þá og ljær armlegg sinn Lots-sonum. [Sela] |
10. | Far með þá eins og Midían, eins og Sísera, eins og Jabín við Kísonlæk, |
11. | þeim var útrýmt hjá Endór, urðu að áburði á jörðina. |
12. | Gjör þá, göfugmenni þeirra, eins og Óreb og Seeb, og alla höfðingja þeirra eins og Seba og Salmúna, |
13. | þá er sögðu: ,,Vér viljum kasta eign vorri á vengi Guðs.`` |
14. | Guð vor, gjör þá sem rykmökk, sem hálmleggi fyrir vindi. |
15. | Eins og eldur, sem brennir skóginn, eins og logi, sem bálast upp um fjöllin, |
16. | svo skalt þú elta þá með ofviðri þínu, skelfa þá með fellibyl þínum. |
17. | Lát andlit þeirra fyllast sneypu, að þeir megi leita nafns þíns, Drottinn!Lát þá verða til skammar og skelfast um aldur, lát þá sæta háðung og tortímast, [ (Psalms 83:19) að þeir megi komast að raun um, að þú einn heitir Drottinn, Hinn hæsti yfir allri jörðunni. ] |
18. | Lát þá verða til skammar og skelfast um aldur, lát þá sæta háðung og tortímast, [ (Psalms 83:19) að þeir megi komast að raun um, að þú einn heitir Drottinn, Hinn hæsti yfir allri jörðunni. ] |
← Psalms (83/150) → |