← Psalms (82/150) → |
1. | Asafs-sálmur. Guð stendur á guðaþingi, heldur dóm mitt á meðal guðanna: |
2. | ,,Hversu lengi ætlið þér að dæma með rangsleitni og draga taum hinna óguðlegu? [Sela] |
3. | Rekið réttar bágstaddra og föðurlausra, látið hinn þjáða og fátæka ná rétti sínum, |
4. | bjargið bágstöddum og snauðum, frelsið þá af hendi óguðlegra.`` |
5. | Þeir hafa eigi skyn né skilning, þeir ráfa í myrkri, allar undirstöður jarðarinnar riða. |
6. | Ég hefi sagt: ,,Þér eruð guðir og allir saman synir Hins hæsta, |
7. | en sannlega skuluð þér deyja sem menn, falla sem einn af höfðingjunum.``Rís upp, ó Guð, dæm þú jörðina, því að þú ert erfðahöfðingi yfir öllum þjóðum. |
8. | Rís upp, ó Guð, dæm þú jörðina, því að þú ert erfðahöfðingi yfir öllum þjóðum. |
← Psalms (82/150) → |