← Psalms (81/150) → |
1. | Til söngstjórans. Á gittít. Asafs-sálmur. |
2. | Fagnið fyrir Guði, styrkleika vorum, látið gleðióp gjalla Guði Jakobs. |
3. | Hefjið lofsöng og berjið bumbur, knýið hinar hugljúfu gígjur og hörpur. |
4. | Þeytið lúðurinn á tunglkomudögum, við tunglfylling á hátíðisdegi vorum. |
5. | Því að þetta eru lög fyrir Ísrael, boðorð Jakobs Guðs. |
6. | Hann gjörði það að reglu í Jósef, þá er hann fór út í móti Egyptalandi. Ég heyri mál, sem ég þekki eigi: |
7. | ,,Ég hefi losað herðar hans við byrðina, hendur hans eru sloppnar við burðarkörfuna. |
8. | Þú kallaðir í neyðinni, og ég frelsaði þig, ég bænheyrði þig í þrumuskýi, reyndi þig hjá Meríbavötnum. [Sela] |
9. | Heyr, lýður minn, að ég megi áminna þig, ó, að þú, Ísrael, vildir heyra mig! |
10. | Enginn annar guð má vera meðal þín, og engan útlendan guð mátt þú tilbiðja. |
11. | Ég er Drottinn, Guð þinn, sem leiddi þig út af Egyptalandi, opna munn þinn, að ég megi seðja þig. |
12. | En lýður minn heyrði eigi raust mína, og Ísrael var mér eigi auðsveipur. |
13. | Þá sleppti ég þeim í þrjósku hjartna þeirra, þeir fengu að ganga eftir eigin geðþótta. |
14. | Ó, að lýður minn vildi heyra mig, Ísrael ganga á mínum vegum, |
15. | þá skyldi ég skjótt lægja óvini þeirra, og snúa hendi minni gegn fjendum þeirra.Hatursmenn Drottins skyldu hræsna fyrir honum og ógæfutími þeirra vara að eilífu. [ (Psalms 81:17) Ég skyldi gefa þér hið kjarnbesta hveiti að eta og seðja þig á hunangi úr klettunum.`` ] |
16. | Hatursmenn Drottins skyldu hræsna fyrir honum og ógæfutími þeirra vara að eilífu. [ (Psalms 81:17) Ég skyldi gefa þér hið kjarnbesta hveiti að eta og seðja þig á hunangi úr klettunum.`` ] |
← Psalms (81/150) → |