← Psalms (8/150) → |
1. | Til söngstjórans. Á gittít. Davíðssálmur. |
2. | Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina! Þú breiðir ljóma þinn yfir himininn. |
3. | Af munni barna og brjóstmylkinga hefir þú gjört þér vígi til varnar gegn óvinum þínum, til þess að þagga niður í hefndargirni óvinarins. |
4. | Þegar ég horfi á himininn, verk handa þinna, tunglið og stjörnurnar, er þú hefir skapað, |
5. | hvað er þá maðurinn þess, að þú minnist hans, og mannsins barn, að þú vitjir þess? |
6. | Þú lést hann verða litlu minni en Guð, með sæmd og heiðri krýndir þú hann. |
7. | Þú lést hann ríkja yfir handaverkum þínum, allt lagðir þú að fótum hans: |
8. | sauðfénað allan og uxa, og auk þess dýr merkurinnar,fugla loftsins og fiska hafsins, allt það er fer hafsins vegu. [ (Psalms 8:10) Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina! ] |
9. | fugla loftsins og fiska hafsins, allt það er fer hafsins vegu. [ (Psalms 8:10) Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina! ] |
← Psalms (8/150) → |