← Psalms (75/150) → |
1. | Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Asafs-sálmur. Ljóð. |
2. | Vér lofum þig, ó Guð, vér lofum þig, og þeir er ákalla nafn þitt, segja frá dásemdarverkum þínum. |
3. | ,,Þegar mér þykir tími til kominn, dæmi ég réttvíslega. |
4. | Þótt jörðin skjálfi með öllum þeim, er á henni búa, þá hefi ég samt fest stoðir. [Sela] |
5. | Ég segi við hina hrokafullu: Sýnið eigi hroka! og við hina óguðlegu: Hefjið eigi hornin! |
6. | Hefjið eigi hornin gegn himninum, mælið eigi drambyrði hnakkakerrtir!`` |
7. | Því að hvorki frá austri né vestri né frá eyðimörkinni kemur neinn, sem veitt geti uppreisn, |
8. | heldur er Guð sá sem dæmir, hann niðurlægir annan og upphefur hinn. |
9. | Því að bikar er í hendi Drottins með freyðandi víni, fullur af kryddi. Af því skenkir hann, já, dreggjar þess súpa og sötra allir óguðlegir menn á jörðu.En ég vil fagna að eilífu, lofsyngja Jakobs Guði. [ (Psalms 75:11) Öll horn óguðlegra verða af höggvin, en horn réttlátra skulu hátt gnæfa. ] |
10. | En ég vil fagna að eilífu, lofsyngja Jakobs Guði. [ (Psalms 75:11) Öll horn óguðlegra verða af höggvin, en horn réttlátra skulu hátt gnæfa. ] |
← Psalms (75/150) → |