← Psalms (72/150) → |
1. | Eftir Salómon. Guð, sel konungi í hendur dóma þína og konungssyni réttlæti þitt, |
2. | að hann dæmi lýð þinn með réttvísi og þína þjáðu með sanngirni. |
3. | Fjöllin beri lýðnum frið og hálsarnir réttlæti. |
4. | Hann láti hina þjáðu meðal lýðsins ná rétti sínum, hann hjálpi hinum snauðu og kremji kúgarann. |
5. | Þá mun hann lifa meðan sólin skín og tunglið ber birtu, frá kyni til kyns. |
6. | Hann mun falla sem regn á slægjuland, sem regnskúrir, er vökva landið. |
7. | Um hans daga skal réttlætið blómgast og gnóttir friðar, uns tunglið er eigi framar til. |
8. | Og hann skal ríkja frá hafi til hafs, frá Fljótinu til endimarka jarðar. |
9. | Fjandmenn hans skulu beygja kné fyrir honum og óvinir hans sleikja duftið. |
10. | Konungarnir frá Tarsis og eylöndunum skulu koma með gjafir, konungarnir frá Saba og Seba skulu færa skatt. |
11. | Og allir konungar skulu lúta honum, allar þjóðir þjóna honum. |
12. | Hann bjargar hinum snauða, er hrópar á hjálp, og hinum þjáða, er enginn liðsinnir. |
13. | Hann aumkast yfir bágstadda og snauða, og fátækum hjálpar hann. |
14. | Frá ofbeldi og ofríki leysir hann þá, og blóð þeirra er dýrmætt í augum hans. |
15. | Hann mun lifa og menn munu gefa honum Saba-gull, menn munu sífellt biðja fyrir honum, blessa hann liðlangan daginn. |
16. | Gnóttir korns munu vera í landinu, á fjallatindunum, í gróðri þess mun þjóta eins og í Líbanon, og menn skulu spretta upp í borgunum eins og gras úr jörðu. |
17. | Nafn hans mun vara að eilífu, meðan sólin skín mun nafn hans gróa. Og með honum skulu allar ættkvíslir jarðarinnar óska sér blessunar, allar þjóðir munu hann sælan segja. |
18. | Lofaður sé Drottinn, Guð, Ísraels Guð, sem einn gjörir furðuverk, |
19. | og lofað sé hans dýrlega nafn um eilífð, og öll jörðin fyllist dýrð hans. Amen, amen.Bænir Davíðs Ísaísonar eru á enda. |
20. | Bænir Davíðs Ísaísonar eru á enda. |
← Psalms (72/150) → |