← Psalms (68/150) → |
1. | Til söngstjórans. Davíðssálmur. Ljóð. |
2. | Guð rís upp, óvinir hans tvístrast, þeir sem hata hann flýja fyrir augliti hans. |
3. | Eins og reykur eyðist, eyðast þeir, eins og vax bráðnar í eldi, tortímast óguðlegir fyrir augliti Guðs. |
4. | En réttlátir gleðjast, fagna fyrir augliti Guðs og kætast stórum. |
5. | Syngið fyrir Guði, vegsamið nafn hans, leggið braut fyrir hann er ekur gegnum öræfin. Drottinn heitir hann, fagnið fyrir augliti hans. |
6. | Hann er faðir föðurlausra, vörður ekknanna, Guð í sínum heilaga bústað. |
7. | Guð lætur hina einmana hverfa heim aftur, hann leiðir hina fjötruðu út til hamingju, en uppreisnarseggir skulu búa í hrjóstrugu landi. |
8. | Ó Guð, þegar þú fórst út á undan lýð þínum, þegar þú brunaðir fram um öræfin, [Sela] |
9. | þá nötraði jörðin, og himnarnir drupu fyrir Guði, Drottni frá Sínaí, fyrir Guði, Ísraels Guði. |
10. | Ríkulegu regni dreyptir þú, ó Guð, á arfleifð þína, það sem vanmegnaðist, styrktir þú. |
11. | Staðinn þar sem söfnuður þinn dvelur, bjóst þú hinum hrjáðu, ó Guð, sakir gæsku þinnar. |
12. | Drottinn lætur orð sín rætast, konurnar sem sigur boða eru mikill her: |
13. | ,,Konungar hersveitanna flýja, þeir flýja, en hún sem heima situr skiptir herfangi. |
14. | Hvort viljið þér liggja milli fjárgirðinganna? Vængir dúfunnar eru lagðir silfri og fjaðrir hennar íbleiku gulli.`` |
15. | Þegar Hinn almáttki tvístraði konungunum, þá snjóaði á Salmon. |
16. | Guðs fjall er Basansfjall, tindafjall er Basansfjall. |
17. | Hví lítið þér, tindafjöll, öfundarauga það fjall er Guð hefir kjörið sér til bústaðar, þar sem Drottinn samt mun búa um eilífð? |
18. | Hervagnar Guðs eru tíþúsundir, þúsundir á þúsundir ofan. Hinn alvaldi kom frá Sínaí til helgidómsins. |
19. | Þú steigst upp til hæða, hafðir á burt bandingja, tókst við gjöfum frá mönnum, jafnvel uppreisnarmönnum, að þú, Drottinn, Guð, mættir búa þar. |
20. | Lofaður sé Drottinn, er ber oss dag eftir dag, Guð er hjálpráð vort. [Sela] |
21. | Guð er oss hjálpræðisguð, og Drottinn alvaldur bjargar frá dauðanum. |
22. | Já, Guð sundurmolar höfuð óvina sinna, hvirfil þeirra, er ganga í sekt sinni. |
23. | Drottinn hefir sagt: ,,Ég vil sækja þá til Basan, flytja þá frá djúpi hafsins, |
24. | að þú megir troða þá til bana, að tungur hunda þinna megi fá sinn hlut af óvinunum.`` |
25. | Menn horfa á inngöngu þína, ó Guð, inngöngu Guðs míns og konungs í musterið. |
26. | Söngvarar eru í fararbroddi, þá strengleikarar, ásamt yngismeyjum, er berja bumbur. |
27. | Lofið Guð á hátíðarsamkundum, lofið Drottin, þér sem eruð af uppsprettu Ísraels. |
28. | Þar er Benjamín litli, er ríkir yfir þeim, höfðingjar Júda í þyrpingu, höfðingjar Sebúlons, höfðingjar Naftalí. |
29. | Bjóð út, ó Guð, styrkleik þínum, þeim styrkleik sem þú hefir auðsýnt oss |
30. | frá musteri þínu í Jerúsalem. Konungar skulu færa þér gjafir. |
31. | Ógna þú dýrinu í sefinu, uxaflokkunum ásamt bolakálfum þjóðanna, sem troða menn fótum sökum ágirndar sinnar á silfri. Tvístra þú þjóðum, er unna ófriði! |
32. | Það koma sendiherrar frá Egyptalandi, Bláland færir Guði gjafir hröðum höndum. |
33. | Þér konungsríki jarðar, syngið Guði, syngið Drottni lof, [Sela] |
34. | honum sem ekur um himnanna himna frá eilífð, hann lætur raust sína gjalla, hina voldugu raust.Tjáið Guði dýrð, yfir Ísrael er hátign hans og máttur hans í skýjunum. [ (Psalms 68:36) Ógurlegur er Guð í helgidómi sínum, Ísraels Guð veitir lýðnum mátt og megin. Lofaður sé Guð! ] |
35. | Tjáið Guði dýrð, yfir Ísrael er hátign hans og máttur hans í skýjunum. [ (Psalms 68:36) Ógurlegur er Guð í helgidómi sínum, Ísraels Guð veitir lýðnum mátt og megin. Lofaður sé Guð! ] |
← Psalms (68/150) → |