← Psalms (67/150) → |
1. | Til söngstjórans. Með strengjaleik. Sálmur. Ljóð. |
2. | Guð sé oss náðugur og blessi oss, hann láti ásjónu sína lýsa meðal vor, [Sela] |
3. | svo að þekkja megi veg þinn á jörðunni og hjálpræði þitt meðal allra þjóða. |
4. | Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð, þig skulu gjörvallir lýðir lofa. |
5. | Gleðjast og fagna skulu þjóðirnar, því að þú dæmir lýðina réttvíslega og leiðir þjóðirnar á jörðunni. [Sela] |
6. | Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð, þig skulu gjörvallir lýðir lofa.Jörðin hefir gefið ávöxt sinn, Guð, vor Guð, blessar oss. [ (Psalms 67:8) Guð blessi oss, svo að öll endimörk jarðar megi óttast hann. ] |
7. | Jörðin hefir gefið ávöxt sinn, Guð, vor Guð, blessar oss. [ (Psalms 67:8) Guð blessi oss, svo að öll endimörk jarðar megi óttast hann. ] |
← Psalms (67/150) → |