← Psalms (65/150) → |
1. | Til söngstjórans. Davíðssálmur. Ljóð. |
2. | Þér ber lofsöngur, Guð, á Síon, og við þig séu heitin efnd. |
3. | Þú sem heyrir bænir, til þín kemur allt hold. |
4. | Margvíslegar misgjörðir urðu mér yfirsterkari, en þú fyrirgafst afbrot vor. |
5. | Sæll er sá er þú útvelur og lætur nálægjast þig til þess að búa í forgörðum þínum, að vér megum seðjast af gæðum húss þíns, helgidómi musteris þíns. |
6. | Með óttalegum verkum svarar þú oss í réttlæti, þú Guð hjálpræðis vors, þú athvarf allra jarðarinnar endimarka og fjarlægra stranda, |
7. | þú sem festir fjöllin með krafti þínum, gyrtur styrkleika, |
8. | þú sem stöðvar brimgný hafsins, brimgnýinn í bylgjum þess og háreystina í þjóðunum, |
9. | svo að þeir er búa við endimörk jarðar óttast tákn þín, austrið og vestrið lætur þú fagna. |
10. | Þú hefir vitjað landsins og vökvað það, blessað það ríkulega með læk Guðs, fullum af vatni, þú hefir framleitt korn þess, því að þannig hefir þú gjört það úr garði. |
11. | Þú hefir vökvað plógför þess, jafnað plóggarða þess, með regnskúrum hefir þú mýkt það, blessað gróður þess. |
12. | Þú hefir krýnt árið með gæsku þinni, og vagnspor þín drjúpa af feiti.Það drýpur af heiðalöndunum, og hæðirnar girðast fögnuði. [ (Psalms 65:14) Hagarnir klæðast hjörðum, og dalirnir hyljast korni. Allt fagnar og syngur. ] |
13. | Það drýpur af heiðalöndunum, og hæðirnar girðast fögnuði. [ (Psalms 65:14) Hagarnir klæðast hjörðum, og dalirnir hyljast korni. Allt fagnar og syngur. ] |
← Psalms (65/150) → |