← Psalms (64/150) → |
1. | Til söngstjórans. Davíðssálmur. |
2. | Heyr, ó Guð, raust mína, er ég kveina, varðveit líf mitt fyrir ógnum óvinarins. |
3. | Skýl mér fyrir bandalagi bófanna, fyrir óaldarflokki illvirkjanna, |
4. | er hvetja tungur sínar sem sverð, leggja örvar sínar, beiskyrðin, á streng |
5. | til þess að skjóta í leyni á hinn ráðvanda, skjóta á hann allt í einu, hvergi hræddir. |
6. | Þeir binda fastmælum með sér ill áform, tala um að leggja leynisnörur, þeir hugsa: ,,Hver ætli sjái það?`` |
7. | Þeir upphugsa ranglæti: ,,Vér erum tilbúnir, vel ráðin ráð!`` því að hugskot hvers eins og hjarta er fullt véla. |
8. | Þá lýstur Guð þá með örinni, allt í einu verða þeir sárir, |
9. | og tunga þeirra verður þeim að falli. Allir þeir er sjá þá, munu hrista höfuðið.Þá mun hver maður óttast og kunngjöra dáðir Guðs og gefa gætur að verkum hans. [ (Psalms 64:11) Hinn réttláti mun gleðjast yfir Drottni og leita hælis hjá honum, og allir hjartahreinir munu sigri hrósa. ] |
10. | Þá mun hver maður óttast og kunngjöra dáðir Guðs og gefa gætur að verkum hans. [ (Psalms 64:11) Hinn réttláti mun gleðjast yfir Drottni og leita hælis hjá honum, og allir hjartahreinir munu sigri hrósa. ] |
← Psalms (64/150) → |