← Psalms (63/150) → |
1. | Sálmur eftir Davíð, þá er hann var í Júda-eyðimörk. |
2. | Drottinn, þú ert minn Guð, þín leita ég, sál mína þyrstir eftir þér, hold mitt þráir þig, í þurru landi, örþrota af vatnsleysi. |
3. | Þannig hefi ég litast um eftir þér í helgidóminum til þess að sjá veldi þitt og dýrð, |
4. | því að miskunn þín er mætari en lífið. Varir mínar skulu vegsama þig. |
5. | Þannig skal ég lofa þig meðan lifi, hefja upp hendurnar í þínu nafni. |
6. | Sál mín mettast sem af merg og feiti, og með fagnandi vörum lofar þig munnur minn, |
7. | þá er ég minnist þín í hvílu minni, hugsa um þig á næturvökunum. |
8. | Því að þú ert mér fulltingi, í skugga vængja þinna fagna ég. |
9. | Sál mín heldur sér fast við þig, hægri hönd þín styður mig. |
10. | Þeir sem sitja um líf mitt sjálfum sér til glötunar, munu hverfa í djúp jarðar.Þeir munu verða ofurseldir sverðseggjum, verða sjakölunum að bráð. [ (Psalms 63:12) Konungurinn skal gleðjast yfir Guði, hver sá er sver við hann, skal sigri hrósa, af því að munni lygaranna hefir verið lokað. ] |
11. | Þeir munu verða ofurseldir sverðseggjum, verða sjakölunum að bráð. [ (Psalms 63:12) Konungurinn skal gleðjast yfir Guði, hver sá er sver við hann, skal sigri hrósa, af því að munni lygaranna hefir verið lokað. ] |
← Psalms (63/150) → |