← Psalms (62/150) → |
1. | Til söngstjórans. Fyrir Jedútún. Davíðssálmur. |
2. | Bíð róleg eftir Guði, sála mín, frá honum kemur hjálpræði mitt. |
3. | Hann einn er klettur minn og hjálpræði, háborg mín _ ég verð eigi valtur á fótum. |
4. | Hversu lengi ætlið þér að ryðjast allir saman gegn einum manni til að fella hann eins og hallan vegg, eins og hrynjandi múr? |
5. | Þeir ráðgast um það eitt að steypa honum úr tign hans, þeir hafa yndi af lygi, þeir blessa með munninum, en bölva í hjartanu. [Sela] |
6. | Bíð róleg eftir Guði, sála mín, því að frá honum kemur von mín. |
7. | Hann einn er klettur minn og hjálpræði, háborg mín _ ég verð eigi valtur á fótum. |
8. | Hjá Guði er hjálpræði mitt og vegsemd, minn örugga klett og hæli mitt hefi ég í Guði. |
9. | Treyst honum, allur þjóðsöfnuðurinn, úthellið hjörtum yðar fyrir honum, Guð er vort hæli. [Sela] |
10. | Hégóminn einn eru mennirnir, tál eru mannanna börn, á metaskálunum lyftast þeir upp, einber hégómi eru þeir allir saman. |
11. | Treystið eigi ránfeng og alið eigi fánýta von til rændra muna, þótt auðurinn vaxi, þá gefið því engan gaum.Eitt sinn hefir Guð talað, tvisvar hefi ég heyrt það: ,,Hjá Guði er styrkleikur.`` [ (Psalms 62:13) Já, hjá þér, Drottinn, er miskunn, því að þú geldur sérhverjum eftir verkum hans. ] |
12. | Eitt sinn hefir Guð talað, tvisvar hefi ég heyrt það: ,,Hjá Guði er styrkleikur.`` [ (Psalms 62:13) Já, hjá þér, Drottinn, er miskunn, því að þú geldur sérhverjum eftir verkum hans. ] |
← Psalms (62/150) → |