← Psalms (6/150) → |
1. | Til söngstjórans. Með strengjaleik á áttstrengjað hljóðfæri. Davíðssálmur. |
2. | Drottinn, refsa mér ekki í reiði þinni og tyfta mig ekki í gremi þinni. |
3. | Líkna mér, Drottinn, því að ég örmagnast, lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast. |
4. | Sál mín er óttaslegin, en þú, ó Drottinn _ hversu lengi? |
5. | Snú þú aftur, Drottinn, frelsa sálu mína, hjálpa mér sakir elsku þinnar. |
6. | Því að enginn minnist þín í dánarheimum, hver skyldi lofa þig hjá Helju? |
7. | Ég er þreyttur af andvörpum mínum, ég lauga rekkju mína í tárum, læt hvílu mína flóa hverja nótt. |
8. | Augu mín eru döpruð af harmi, orðin sljó sakir allra óvina minna. |
9. | Farið frá mér, allir illgjörðamenn, því að Drottinn hefir heyrt grátraust mína.Drottinn hefir heyrt grátbeiðni mína, Drottinn tekur á móti bæn minni. [ (Psalms 6:11) Allir óvinir mínir skulu verða til skammar og skelfast mjög, hraða sér sneyptir burt. ] |
10. | Drottinn hefir heyrt grátbeiðni mína, Drottinn tekur á móti bæn minni. [ (Psalms 6:11) Allir óvinir mínir skulu verða til skammar og skelfast mjög, hraða sér sneyptir burt. ] |
← Psalms (6/150) → |