← Psalms (59/150) → |
1. | Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Miktam eftir Davíð, þá er Sál sendi menn og þeir héldu vörð um húsið til þess að drepa hann. |
2. | Frelsa mig frá óvinum mínum, Guð minn, bjarga mér frá fjendum mínum. |
3. | Frelsa mig frá illgjörðamönnunum og hjálpa mér gegn morðingjunum, |
4. | því sjá, þeir sitja um líf mitt, hinir sterku áreita mig, þótt ég hafi ekki brotið eða syndgað, Drottinn. |
5. | Þótt ég hafi eigi misgjört, hlaupa þeir að og búast til áhlaups. Vakna þú mér til liðveislu og lít á! |
6. | En þú, Drottinn, Guð hersveitanna, Ísraels Guð, vakna þú til þess að vitja allra þjóðanna, þyrm eigi neinum fráhverfum syndara. [Sela] |
7. | Á hverju kvöldi koma þeir aftur, ýlfra eins og hundar og sveima um borgina. |
8. | Sjá, það freyðir úr munni þeirra, sverð eru á vörum þeirra, því að _ ,,Hver heyrir?`` |
9. | En þú, Drottinn, hlærð að þeim, þú gjörir gys að öllum þjóðunum. |
10. | Vígi mitt, um þig vil ég kveða, því að Guð er háborg mín. |
11. | Guð kemur í móti mér með náð sinni, Guð lætur mig sjá óvini mína auðmýkta. |
12. | Drep þá eigi, svo að lýður minn gleymi eigi, lát þá reika fyrir veldi þínu og steyp þeim af stóli, þú Drottinn, skjöldur vor, |
13. | sakir syndar munns þeirra, orðsins af vörum þeirra, og lát þá verða veidda í hroka þeirra, og sakir formælinga þeirra og lygi, er þeir tala. |
14. | Afmá þá í reiði, afmá þá, uns þeir eru eigi framar til, og lát þá kenna á því, að Guð ríkir yfir Jakobsætt, allt til endimarka jarðar. [Sela] |
15. | Á hverju kveldi koma þeir aftur, ýlfra eins og hundar og sveima um borgina. |
16. | Þeir reika um eftir æti og urra, ef þeir verða eigi saddir.En ég vil kveða um mátt þinn og fagna yfir náð þinni á hverjum morgni, því að þú hefir gjörst háborg mín og athvarf á degi neyðar minnar. [ (Psalms 59:18) Vígi mitt, um þig vil ég kveða, því að Guð er háborg mín, minn miskunnsami Guð. ] |
17. | En ég vil kveða um mátt þinn og fagna yfir náð þinni á hverjum morgni, því að þú hefir gjörst háborg mín og athvarf á degi neyðar minnar. [ (Psalms 59:18) Vígi mitt, um þig vil ég kveða, því að Guð er háborg mín, minn miskunnsami Guð. ] |
← Psalms (59/150) → |