← Psalms (56/150) → |
1. | Til söngstjórans. Lag: Dúfan í fjarlægum eikilundi. Miktam eftir Davíð, þá er Filistar gripu hann í Gat. |
2. | Ver mér náðugur, Guð, því að menn kremja mig, liðlangan daginn kreppa bardagamenn að mér. |
3. | Fjandmenn mínir kremja mig liðlangan daginn, því að margir eru þeir, sem berjast gegn mér. |
4. | Þegar ég er hræddur, treysti ég þér. |
5. | Með Guðs hjálp mun ég lofa orð hans, Guði treysti ég, ég óttast eigi. Hvað getur hold gjört mér? |
6. | Þeir spilla málefnum mínum án afláts, allt það er þeir hafa hugsað í gegn mér, er til ills. |
7. | Þeir áreita mig, þeir sitja um mig, þeir gefa gætur að ferðum mínum, eins og þeir væntu eftir að ná lífi mínu. |
8. | Sakir ranglætis þeirra verður þeim engrar undankomu auðið, steyp þjóðunum í reiði þinni, ó Guð. |
9. | Þú hefir talið hrakninga mína, tárum mínum er safnað í sjóð þinn, já, rituð í bók þína. |
10. | Fyrir því skulu óvinir mínir hörfa undan, er ég hrópa, það veit ég, að Guð liðsinnir mér. |
11. | Með Guðs hjálp mun ég lofa orð hans, með hjálp Drottins mun ég lofa orð hans. |
12. | Guði treysti ég, ég óttast eigi, hvað geta menn gjört mér?Á mér hvíla, ó Guð, heit við þig, ég vil gjalda þér þakkarfórnir, [ (Psalms 56:14) af því þú hefir frelsað sál mína frá dauða og fætur mína frá hrösun, svo að ég megi ganga frammi fyrir Guði í ljósi lífsins. ] |
13. | Á mér hvíla, ó Guð, heit við þig, ég vil gjalda þér þakkarfórnir, [ (Psalms 56:14) af því þú hefir frelsað sál mína frá dauða og fætur mína frá hrösun, svo að ég megi ganga frammi fyrir Guði í ljósi lífsins. ] |
← Psalms (56/150) → |