← Psalms (55/150) → |
1. | Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðs-maskíl. |
2. | Hlýð, ó Guð, á bæn mína, fel þig eigi fyrir grátbeiðni minni. |
3. | Veit mér athygli og svara mér. Ég kveina í harmi mínum og styn |
4. | sakir háreysti óvinarins, sakir hróps hins óguðlega, því að þeir steypa yfir mig ógæfu og ofsækja mig grimmilega. |
5. | Hjartað berst ákaft í brjósti mér, ógnir dauðans falla yfir mig, |
6. | ótti og skelfing er yfir mig komin, og hryllingur fer um mig allan, |
7. | svo að ég segi: ,,Ó að ég hefði vængi eins og dúfan, þá skyldi ég fljúga burt og finna hvíldarstað, |
8. | já, ég skyldi svífa langt burt, ég skyldi gista í eyðimörkinni. [Sela] |
9. | Ég skyldi flýta mér að leita mér hælis fyrir þjótandi vindum og veðri.`` |
10. | Rugla, Drottinn, sundra tungum þeirra, því að ég sé kúgun og deilur í borginni. |
11. | Dag og nótt ganga þær um á múrum hennar, en ógæfa og armæða eru þar inni fyrir. |
12. | Glötun er inni í henni, ofbeldi og svik víkja eigi burt frá torgi hennar. |
13. | Því að það er eigi óvinur sem hæðir mig _ það gæti ég þolað, og eigi hatursmaður minn er hreykir sér yfir mig _ fyrir honum gæti ég farið í felur, |
14. | heldur þú, jafningi minn, vinur minn og kunningi, |
15. | við sem vorum ástúðarvinir, sem gengum í eindrægni saman í Guðs hús. |
16. | Dauðinn komi yfir þá; stígi þeir lifandi niður til Heljar, því að illska er í bústöðum þeirra, í hjörtum þeirra. |
17. | En ég hrópa til Guðs, og Drottinn mun hjálpa mér. |
18. | Kvöld og morgna og um miðjan dag harma ég og styn, og hann heyrir raust mína. |
19. | Hann endurleysir sál mína og gefur mér frið, svo að þeir geta eigi nálgast mig, því að mótstöðumenn mínir eru margir. |
20. | Guð mun heyra, og hann er ríkir frá eilífð mun lægja þá. [Sela] Þeir breytast ekki og óttast eigi Guð. |
21. | Vinur minn lagði hendur á þann er lifði í sátt við hann, hann rauf sáttmál sitt. |
22. | Hálli en smjör er tunga hans, en ófriður er í hjarta hans, mýkri en olía eru orð hans, og þó brugðin sverð.Varpa áhyggjum þínum á Drottin, hann mun bera umhyggju fyrir þér, hann mun eigi að eilífu láta réttlátan mann verða valtan á fótum. [ (Psalms 55:24) Og þú, ó Guð, munt steypa þeim niður í grafardjúpið. Morðingjar og svikarar munu eigi ná hálfum aldri, en ég treysti þér. ] |
23. | Varpa áhyggjum þínum á Drottin, hann mun bera umhyggju fyrir þér, hann mun eigi að eilífu láta réttlátan mann verða valtan á fótum. [ (Psalms 55:24) Og þú, ó Guð, munt steypa þeim niður í grafardjúpið. Morðingjar og svikarar munu eigi ná hálfum aldri, en ég treysti þér. ] |
← Psalms (55/150) → |