← Psalms (51/150) → |
1. | Til söngstjórans. Sálmur Davíðs, |
2. | þá er Natan spámaður kom til hans, eftir að hann hafði gengið inn til Batsebu. |
3. | Guð, vertu mér náðugur sakir elsku þinnar, afmá brot mín sakir þinnar miklu miskunnsemi. |
4. | Þvo mig hreinan af misgjörð minni, hreinsa mig af synd minni, |
5. | því að ég þekki sjálfur afbrot mín, og synd mín stendur mér stöðugt fyrir hugskotssjónum. |
6. | Gegn þér einum hefi ég syndgað og gjört það sem illt er í augum þínum. Því ert þú réttlátur, er þú talar, hreinn, er þú dæmir. |
7. | Sjá, sekur var ég, er ég varð til, syndugur, er móðir mín fæddi mig. |
8. | Sjá, þú hefir þóknun á hreinskilni hið innra, og í fylgsnum hjartans kennir þú mér visku! |
9. | Hreinsa mig með ísóp, svo að ég verði hreinn, þvo mig, svo að ég verði hvítari en mjöll. |
10. | Lát mig heyra fögnuð og gleði, lát kætast beinin sem þú hefir sundurmarið. |
11. | Byrg auglit þitt fyrir syndum mínum og afmá allar misgjörðir mínar. |
12. | Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð, og veit mér nýjan, stöðugan anda. |
13. | Varpa mér ekki burt frá augliti þínu og tak ekki þinn heilaga anda frá mér. |
14. | Veit mér aftur fögnuð þíns hjálpræðis og styð mig með fúsleiks anda, |
15. | að ég megi kenna afbrotamönnum vegu þína og syndarar megi hverfa aftur til þín. |
16. | Frelsa mig frá dauðans háska, Guð hjálpræðis míns, lát tungu mína fagna yfir réttlæti þínu. |
17. | Drottinn, opna varir mínar, svo að munnur minn kunngjöri lof þitt! |
18. | Þú hefir ekki þóknun á sláturfórnum _ annars mundi ég láta þær í té _ og að brennifórnum er þér ekkert yndi.Guði þekkar fórnir eru sundurmarinn andi, sundurmarið og sundurkramið hjarta munt þú, ó Guð, eigi fyrirlíta. [ (Psalms 51:20) Gjör vel við Síon sakir náðar þinnar, reis múra Jerúsalem! ] [ (Psalms 51:21) Þá munt þú hafa þóknun á réttum fórnum, á brennifórn og alfórn, þá munu menn bera fram uxa á altari þitt. ] |
19. | Guði þekkar fórnir eru sundurmarinn andi, sundurmarið og sundurkramið hjarta munt þú, ó Guð, eigi fyrirlíta. [ (Psalms 51:20) Gjör vel við Síon sakir náðar þinnar, reis múra Jerúsalem! ] [ (Psalms 51:21) Þá munt þú hafa þóknun á réttum fórnum, á brennifórn og alfórn, þá munu menn bera fram uxa á altari þitt. ] |
← Psalms (51/150) → |