← Psalms (48/150) → |
1. | Ljóð. Kóraítasálmur. |
2. | Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg vors Guðs, á sínu helga fjalli. |
3. | Yndisleg rís hún, gleði alls landsins, Síonarhæð, yst í norðri, borg hins mikla konungs. |
4. | Guð hefir í höllum hennar kunngjört sig sem vígi. |
5. | Því sjá, konungarnir áttu með sér stefnu, héldu fram saman. |
6. | Óðara en þeir sáu, urðu þeir agndofa, skelfdust, flýðu. |
7. | Felmtur greip þá samstundis, angist sem jóðsjúka konu. |
8. | Með austanvindinum brýtur þú Tarsis-knörru. |
9. | Eins og vér höfum heyrt, svo höfum vér séð í borg Drottins hersveitanna, í borg vors Guðs. Guð lætur hana standa að eilífu. [Sela] |
10. | Guð, vér ígrundum elsku þína inni í musteri þínu. |
11. | Eins og nafn þitt, Guð, svo hljómi lofgjörð þín til endimarka jarðar. Hægri hönd þín er full réttlætis. |
12. | Síonfjall gleðst, Júdadætur fagna vegna dóma þinna. |
13. | Kringið um Síon, gangið umhverfis hana, teljið turna hennar.Hyggið að múrgirðing hennar, skoðið hallir hennar, til þess að þér getið sagt komandi kynslóð, [ (Psalms 48:15) að slíkur sé Drottinn, Guð vor. Um aldur og ævi mun hann leiða oss. ] |
14. | Hyggið að múrgirðing hennar, skoðið hallir hennar, til þess að þér getið sagt komandi kynslóð, [ (Psalms 48:15) að slíkur sé Drottinn, Guð vor. Um aldur og ævi mun hann leiða oss. ] |
← Psalms (48/150) → |