← Psalms (47/150) → |
1. | Til söngstjórans. Kóraítasálmur. |
2. | Klappið saman lófum, allar þjóðir, fagnið fyrir Guði með gleðiópi. |
3. | Því að Drottinn, Hinn hæsti, er ógurlegur, voldugur konungur yfir gjörvallri jörðinni. |
4. | Hann leggur undir oss lýði og þjóðir fyrir fætur vora. |
5. | Hann útvaldi handa oss óðal vort, fremdarhnoss Jakobs, sem hann elskar. [Sela] |
6. | Guð er upp stiginn með fagnaðarópi, með lúðurhljómi er Drottinn upp stiginn. |
7. | Syngið Guði, syngið, syngið konungi vorum, syngið! |
8. | Því að Guð er konungur yfir gjörvallri jörðinni, syngið Guði lofsöng!Guð er orðinn konungur yfir þjóðunum, Guð er setstur í sitt heilaga hásæti. [ (Psalms 47:10) Göfugmenni þjóðanna safnast saman ásamt lýð Abrahams Guðs. Því að Guðs eru skildir jarðarinnar, hann er mjög hátt upphafinn. ] |
9. | Guð er orðinn konungur yfir þjóðunum, Guð er setstur í sitt heilaga hásæti. [ (Psalms 47:10) Göfugmenni þjóðanna safnast saman ásamt lýð Abrahams Guðs. Því að Guðs eru skildir jarðarinnar, hann er mjög hátt upphafinn. ] |
← Psalms (47/150) → |