← Psalms (46/150) → |
1. | Til söngstjórans. Eftir Kóraíta. Fyrir kvenraddir. Ljóð. |
2. | Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. |
3. | Fyrir því hræðumst vér eigi, þótt jörðin haggist og fjöllin bifist og steypist í skaut sjávarins. |
4. | Látum vötnin gnýja og freyða, látum fjöllin gnötra fyrir æðigangi hafsins. [Sela] |
5. | Elfar-kvíslir gleðja Guðs borg, heilagan bústað Hins hæsta. |
6. | Guð býr í henni, eigi mun hún bifast, Guð hjálpar henni, þegar birtir af degi. |
7. | Þjóðir gnúðu, ríki riðuðu, raust hans þrumaði, jörðin nötraði. |
8. | Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. [Sela] |
9. | Komið, skoðið dáðir Drottins, hversu hann framkvæmir furðuverk á jörðu. |
10. | Hann stöðvar styrjaldir til endimarka jarðar, brýtur bogann, slær af oddinn, brennir skjöldu í eldi.,,Verið kyrrir og viðurkennið, að ég er Guð, hátt upphafinn meðal þjóðanna, hátt upphafinn á jörðu.`` [ (Psalms 46:12) Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. [Sela] ] |
11. | ,,Verið kyrrir og viðurkennið, að ég er Guð, hátt upphafinn meðal þjóðanna, hátt upphafinn á jörðu.`` [ (Psalms 46:12) Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. [Sela] ] |
← Psalms (46/150) → |