← Psalms (45/150) → |
1. | Til söngstjórans. Lag: Liljur. Kóraítamaskíl. Brúðkaupskvæði. |
2. | Hjarta mitt svellur af ljúfum orðum, ég flyt konungi kvæði mitt, tunga mín er sem penni hraðritarans. |
3. | Fegurri ert þú en mannanna börn, yndisleik er úthellt yfir varir þínar, fyrir því hefir Guð blessað þig að eilífu. |
4. | Gyrð lendar þínar sverði, þú hetja, ljóma þínum og vegsemd. |
5. | Sæk fram sigursæll sakir tryggðar og réttlætis, hægri hönd þín mun sýna þér ógurlega hluti. |
6. | Örvar þínar eru hvesstar, þjóðir falla að fótum þér, fjandmenn konungs eru horfnir. |
7. | Hásæti þitt er Guðs hásæti um aldur og ævi, sproti ríkis þíns er réttlætis-sproti. |
8. | Þú elskar réttlæti og hatar ranglæti, fyrir því hefir Guð, þinn Guð, smurt þig með fagnaðarolíu framar félögum þínum. |
9. | Myrra og alóe og kassía eru öll þín klæði, frá fílabeinshöllinni gleður strengleikurinn þig. |
10. | Konungadætur eru meðal vildarkvenna þinna, konungsbrúðurin stendur þér til hægri handar í skrúða Ófír-gulls. |
11. | ,,Heyr, dóttir, og hneig eyra þitt! Gleym þjóð þinni og föðurlandi, |
12. | að konungi megi renna hugur til fegurðar þinnar, því að hann er herra þinn og honum átt þú að lúta. |
13. | Frá Týrus munu menn koma með gjafir, auðugustu menn lýðsins leita hylli þinnar.`` |
14. | Eintómt skraut er konungsdóttirin, perlum sett og gullsaumi eru klæði hennar. |
15. | Í glitofnum klæðum er hún leidd fyrir konung, meyjar fylgja henni, vinkonur hennar eru færðar fram fyrir þig. |
16. | Þær eru leiddar inn með fögnuði og gleði, þær fara inn í höll konungs.Í stað feðra þinna komi synir þínir, þú munt gjöra þá að höfðingjum um land allt. [ (Psalms 45:18) Ég vil gjöra nafn þitt minnisstætt öllum komandi kynslóðum, þess vegna skulu þjóðir lofa þig um aldur og ævi. ] |
17. | Í stað feðra þinna komi synir þínir, þú munt gjöra þá að höfðingjum um land allt. [ (Psalms 45:18) Ég vil gjöra nafn þitt minnisstætt öllum komandi kynslóðum, þess vegna skulu þjóðir lofa þig um aldur og ævi. ] |
← Psalms (45/150) → |