← Psalms (44/150) → |
1. | Til söngstjórans. Kóraítamaskíl. |
2. | Guð, með eyrum vorum höfum vér heyrt, feður vorir hafa sagt oss frá dáð þeirri, er þú drýgðir á dögum þeirra, frá því, er þú gjörðir forðum daga. |
3. | Þú stökktir burt þjóðum, en gróðursettir þá, þú lékst lýði harðlega, en útbreiddir þá. |
4. | Eigi unnu þeir landið með sverðum sínum, og eigi hjálpaði armleggur þeirra þeim, heldur hægri hönd þín og armleggur þinn og ljós auglitis þíns, því að þú hafðir þóknun á þeim. |
5. | Þú einn ert konungur minn, ó Guð, bjóð út hjálp Jakobsætt til handa. |
6. | Fyrir þína hjálp rekum vér fjandmenn vora undir, og fyrir þitt nafn troðum vér mótstöðumenn vora fótum. |
7. | Ég treysti eigi boga mínum, og sverð mitt veitir mér eigi sigur, |
8. | heldur veitir þú oss sigur yfir fjandmönnum vorum og lætur hatursmenn vora verða til skammar. |
9. | Af Guði hrósum vér oss ætíð og lofum nafn þitt að eilífu. [Sela] |
10. | Og þó hefir þú útskúfað oss og látið oss verða til skammar og fer eigi út með hersveitum vorum. |
11. | Þú lætur oss hörfa undan fjandmönnum, og hatursmenn vorir taka herfang. |
12. | Þú selur oss fram sem fénað til slátrunar og tvístrar oss meðal þjóðanna. |
13. | Þú selur lýð þinn fyrir gjafverð, tekur ekkert verð fyrir hann. |
14. | Þú lætur oss verða til háðungar nágrönnum vorum, til spotts og athlægis þeim er búa umhverfis oss. |
15. | Þú gjörir oss að orðskvið meðal lýðanna, lætur þjóðirnar hrista höfuðið yfir oss. |
16. | Stöðuglega stendur smán mín mér fyrir sjónum, og skömm hylur auglit mitt, |
17. | af því ég verð að heyra spott og lastmæli og horfa á óvininn og hinn hefnigjarna. |
18. | Allt þetta hefir mætt oss, og þó höfum vér eigi gleymt þér og eigi rofið sáttmála þinn. |
19. | Hjarta vort hefir eigi horfið frá þér né skref vor beygt út af vegi þínum, |
20. | en samt hefir þú kramið oss sundur á stað sjakalanna og hulið oss niðdimmu. |
21. | Ef vér hefðum gleymt nafni Guðs vors og fórnað höndum til útlendra guða, |
22. | mundi Guð eigi verða þess áskynja, hann sem þekkir leyndarmál hjartans? |
23. | En þín vegna erum vér stöðugt drepnir, erum metnir sem sláturfé. |
24. | Vakna! Hví sefur þú, Drottinn? Vakna, útskúfa oss eigi um aldur! |
25. | Hví hylur þú auglit þitt, gleymir eymd vorri og kúgun?Sál vor er beygð í duftið, líkami vor loðir við jörðina. [ (Psalms 44:27) Rís upp, veit oss lið og frelsa oss sakir miskunnar þinnar. ] |
26. | Sál vor er beygð í duftið, líkami vor loðir við jörðina. [ (Psalms 44:27) Rís upp, veit oss lið og frelsa oss sakir miskunnar þinnar. ] |
← Psalms (44/150) → |