← Psalms (41/150) → |
1. | Til söngstjórans. Davíðssálmur. |
2. | Sæll er sá er gefur gaum að bágstöddum, á mæðudeginum bjargar Drottinn honum. |
3. | Drottinn varðveitir hann og lætur hann njóta lífs og sælu í landinu. Og eigi ofurselur þú hann græðgi óvina hans. |
4. | Drottinn styður hann á sóttarsænginni, þegar hann er sjúkur, breytir þú beð hans í hvílurúm. |
5. | Ég sagði: ,,Ver mér náðugur, Drottinn, lækna sál mína, því að ég hefi syndgað móti þér.`` |
6. | Óvinir mínir biðja mér óbæna: ,,Hvenær skyldi hann deyja og nafn hans hverfa?`` |
7. | Og ef einhver kemur til þess að vitja mín, talar hann tál. Hjarta hans safnar að sér illsku, hann fer út og lætur dæluna ganga. |
8. | Allir hatursmenn mínir hvískra um mig, þeir hyggja á illt mér til handa: |
9. | ,,Hann er altekinn helsótt, hann er lagstur og rís eigi upp framar.`` |
10. | Jafnvel sá er ég lifði í sátt við, sá er ég treysti, sá er etið hefir af mat mínum, lyftir hæl sínum í móti mér. |
11. | En þú, Drottinn, ver mér náðugur og lát mig aftur rísa á fætur, að ég megi endurgjalda þeim. |
12. | Af því veit ég, að þú hefir þóknun á mér, að óvinur minn hlakkar ekki yfir mér.Vegna sakleysis míns hélst þú mér uppi og lætur mig standa frammi fyrir augliti þínu að eilífu. _________ [ (Psalms 41:14) Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, frá eilífð til eilífðar. Amen. Amen. ] |
13. | Vegna sakleysis míns hélst þú mér uppi og lætur mig standa frammi fyrir augliti þínu að eilífu. _________ [ (Psalms 41:14) Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, frá eilífð til eilífðar. Amen. Amen. ] |
← Psalms (41/150) → |