← Psalms (38/150) → |
1. | Davíðssálmur. Minningarljóð. |
2. | Drottinn, refsa mér ekki í reiði þinni og tyfta mig ekki í gremi þinni. |
3. | Örvar þínar standa fastar í mér, og hönd þín liggur þungt á mér. |
4. | Enginn heilbrigður blettur er á líkama mínum sakir reiði þinnar, ekkert heilt í beinum mínum sakir syndar minnar. |
5. | Misgjörðir mínar ganga mér yfir höfuð, sem þung byrði eru þær mér of þungar orðnar. |
6. | Ódaun leggur af sárum mínum, rotnun er í þeim sakir heimsku minnar. |
7. | Ég er beygður og mjög bugaður, ráfa um harmandi daginn langan. |
8. | Lendar mínar eru fullar bruna, og enginn heilbrigður blettur er á líkama mínum. |
9. | Ég er lémagna og kraminn mjög, kveina af angist hjartans. |
10. | Drottinn, öll mín þrá er þér kunn og andvörp mín eru eigi hulin þér. |
11. | Hjarta mitt berst ákaft, kraftur minn er þrotinn, jafnvel ljós augna minna er horfið mér. |
12. | Ástvinir mínir og kunningjar hörfa burt fyrir kröm minni, og frændur mínir standa fjarri. |
13. | Þeir er sitja um líf mitt, leggja snörur fyrir mig, þeir er leita mér meins, mæla skaðræði og hyggja á svik allan liðlangan daginn. |
14. | En ég er sem daufur, ég heyri það ekki, og sem dumbur, er eigi opnar munninn, |
15. | ég er sem maður er eigi heyrir og engin andmæli eru í munni hans. |
16. | Því að á þig, Drottinn, vona ég, þú munt svara mér, Drottinn minn og Guð minn, |
17. | því að ég segi: ,,Lát þá eigi hlakka yfir mér, eigi hælast um af því, að mér skriðni fótur.`` |
18. | Því að ég er að falli kominn, og þjáningar mínar eru mér æ fyrir augum. |
19. | Ég játa misgjörð mína, harma synd mína, |
20. | og þeir sem án saka eru óvinir mínir, eru margir, fjölmargir þeir er hata mig að ástæðulausu. |
21. | Þeir gjalda mér gott með illu, sýna mér fjandskap, af því ég legg stund á það sem gott er.Yfirgef mig ekki, Drottinn, Guð minn, ver ekki fjarri mér, [ (Psalms 38:23) skunda til liðs við mig, Drottinn, þú hjálp mín. ] |
22. | Yfirgef mig ekki, Drottinn, Guð minn, ver ekki fjarri mér, [ (Psalms 38:23) skunda til liðs við mig, Drottinn, þú hjálp mín. ] |
← Psalms (38/150) → |