← Psalms (35/150) → |
1. | Davíðssálmur. Deil þú, Drottinn, við þá er deila við mig, berst þú við þá er berjast við mig. |
2. | Tak skjöld og törgu og rís upp mér til hjálpar. |
3. | Tak til spjót og öxi til þess að mæta ofsækjendum mínum, seg við sál mína: ,,Ég er hjálp þín!`` |
4. | Lát þá er sitja um líf mitt hljóta smán og svívirðing, lát þá hverfa aftur með skömm, er ætla að gjöra mér illt. |
5. | Lát þá verða sem sáðir fyrir vindi, þegar engill Drottins varpar þeim um koll. |
6. | Lát veg þeirra verða myrkan og hálan, þegar engill Drottins eltir þá. |
7. | Því að ástæðulausu hafa þeir lagt net sitt leynt fyrir mig, að ástæðulausu hafa þeir grafið gryfju fyrir mig. |
8. | Lát tortíming koma yfir þá, er þá varir minnst, lát netið, er þeir hafa lagt leynt, veiða sjálfa þá, lát þá falla í þeirra eigin gryfju. |
9. | En sál mín skal kætast yfir Drottni, gleðjast yfir hjálpræði hans. |
10. | Öll bein mín skulu segja: ,,Drottinn, hver er sem þú, er frelsar hinn umkomulausa frá þeim sem er honum yfirsterkari, hinn hrjáða og snauða frá þeim sem rænir hann?`` |
11. | Ljúgvottar rísa upp, þeir spyrja mig um það sem ég veit ekki um. |
12. | Þeir launa mér gott með illu, einsemd varð hlutfall mitt. |
13. | En þegar þeir voru sjúkir, klæddist ég hærusekk, þjáði mig með föstu og bað með niðurlútu höfði, |
14. | gekk um harmandi, sem vinur eða bróðir ætti í hlut, var beygður eins og sá er syrgir móður sína. |
15. | En þeir fagna yfir hrösun minni og safnast saman, útlendingar og ókunnugir menn safnast saman móti mér, mæla lastyrði og þagna eigi. |
16. | Þeir freista mín, smána og smána, nísta tönnum í gegn mér. |
17. | Drottinn, hversu lengi vilt þú horfa á? Frelsa sál mína undan eyðileggingu þeirra, mína einmana sál undan ljónunum. |
18. | Þá vil ég lofa þig í miklum söfnuði, vegsama þig í miklum mannfjölda. |
19. | Lát eigi þá sem án saka eru óvinir mínir, hlakka yfir mér, lát eigi þá sem að ástæðulausu hata mig, skotra augunum. |
20. | Því að frið tala þeir eigi, og móti hinum kyrrlátu í landinu hugsa þeir upp sviksamleg orð. |
21. | Þeir glenna upp ginið í móti mér, segja: ,,Hæ, hæ! Nú höfum vér séð það með eigin augum!`` |
22. | Þú hefir séð það, Drottinn, ver eigi hljóður, Drottinn, ver eigi langt í burtu frá mér. |
23. | Vakna, rís upp og lát mig ná rétti mínum, Guð minn og Drottinn, til þess að flytja mál mitt. |
24. | Dæm mig eftir réttlæti þínu, Drottinn, Guð minn, og lát þá eigi hlakka yfir mér, |
25. | lát þá ekki segja í hjarta sínu: ,,Hæ! Ósk vor er uppfyllt!`` lát þá ekki segja: ,,Vér höfum gjört út af við hann.`` |
26. | Lát þá alla verða til skammar og hljóta kinnroða, er hlakka yfir ógæfu minni, lát þá íklæðast skömm og svívirðing, er hreykja sér upp gegn mér. |
27. | Lát þá kveða fagnaðarópi og gleðjast, er unna mér réttar, lát þá ætíð segja: ,,Vegsamaður sé Drottinn, hann sem ann þjóni sínum heilla!``Og tunga mín skal boða réttlæti þitt, lofstír þinn liðlangan daginn. |
28. | Og tunga mín skal boða réttlæti þitt, lofstír þinn liðlangan daginn. |
← Psalms (35/150) → |