← Psalms (34/150) → |
1. | Sálmur Davíðs, þá er hann gjörði sér upp vitfirringu frammi fyrir Abímelek, svo að Abímelek rak hann í burt, og hann fór burt. |
2. | Ég vil vegsama Drottin alla tíma, ætíð sé lof hans mér í munni. |
3. | Sál mín hrósar sér af Drottni, hinir hógværu skulu heyra það og fagna. |
4. | Miklið Drottin ásamt mér, tignum í sameiningu nafn hans. |
5. | Ég leitaði Drottins, og hann svaraði mér, frelsaði mig frá öllu því er ég hræddist. |
6. | Lítið til hans og gleðjist, og andlit yðar skulu eigi blygðast. |
7. | Hér er volaður maður sem hrópaði, og Drottinn heyrði hann og hjálpaði honum úr öllum nauðum hans. |
8. | Engill Drottins setur vörð kringum þá er óttast hann, og frelsar þá. |
9. | Finnið og sjáið, að Drottinn er góður, sæll er sá maður er leitar hælis hjá honum. |
10. | Óttist Drottin, þér hans heilögu, því að þeir er óttast hann líða engan skort. |
11. | Ung ljón eiga við skort að búa og svelta, en þeir er leita Drottins fara einskis góðs á mis. |
12. | Komið, börn, hlýðið á mig, ég vil kenna yður ótta Drottins. |
13. | Ef einhver óskar lífs, þráir lífdaga til þess að njóta hamingjunnar, |
14. | þá varðveit tungu þína frá illu og varir þínar frá svikatali, |
15. | forðast illt og gjörðu gott, leita friðar og legg stund á hann. |
16. | Augu Drottins hvíla á réttlátum, og eyru hans gefa gaum að hrópi þeirra. |
17. | Auglit Drottins horfir á þá er illa breyta, til þess að afmá minningu þeirra af jörðunni. |
18. | Ef réttlátir hrópa, þá heyrir Drottinn, úr öllum nauðum þeirra frelsar hann þá. |
19. | Drottinn er nálægur þeim er hafa sundurmarið hjarta, þeim er hafa sundurkraminn anda, hjálpar hann. |
20. | Margar eru raunir réttláts manns, en Drottinn frelsar hann úr þeim öllum. |
21. | Hann gætir allra beina hans, ekki eitt af þeim skal brotið.Ógæfa drepur óguðlegan mann, þeir er hata hinn réttláta, skulu sekir dæmdir. [ (Psalms 34:23) Drottinn frelsar líf þjóna sinna, enginn sá er leitar hælis hjá honum, mun sekur dæmdur. ] |
22. | Ógæfa drepur óguðlegan mann, þeir er hata hinn réttláta, skulu sekir dæmdir. [ (Psalms 34:23) Drottinn frelsar líf þjóna sinna, enginn sá er leitar hælis hjá honum, mun sekur dæmdur. ] |
← Psalms (34/150) → |