← Psalms (33/150) → |
1. | Gleðjist, þér réttlátir, yfir Drottni! Hreinlyndum hæfir lofsöngur. |
2. | Lofið Drottin með gígjum, leikið fyrir honum á tístrengjaða hörpu. |
3. | Syngið honum nýjan söng, knýið strengina ákaft með fagnaðarópi. |
4. | Því að orð Drottins er áreiðanlegt, og öll verk hans eru í trúfesti gjörð. |
5. | Hann hefir mætur á réttlæti og rétti, jörðin er full af miskunn Drottins. |
6. | Fyrir orð Drottins voru himnarnir gjörðir og öll þeirra prýði fyrir anda munns hans. |
7. | Hann safnaði vatni hafsins sem í belg, lét straumana í forðabúr. |
8. | Öll jörðin óttist Drottin, allir heimsbúar hræðist hann, |
9. | því að hann talaði _ og það varð, hann bauð _ þá stóð það þar. |
10. | Drottinn ónýtir ráð þjóðanna, gjörir að engu áform lýðanna, |
11. | en ráð Drottins stendur stöðugt um aldur, áform hjarta hans frá kyni til kyns. |
12. | Sæl er sú þjóð er á Drottin að Guði, sá lýður er hann hefir kjörið sér til eignar. |
13. | Drottinn lítur niður af himni, sér öll mannanna börn, |
14. | frá bústað sínum virðir hann fyrir sér alla jarðarbúa, |
15. | hann sem myndað hefir hjörtu þeirra allra og gefur gætur að öllum athöfnum þeirra. |
16. | Eigi sigrar konungurinn fyrir gnótt herafla síns, eigi bjargast kappinn fyrir ofurafl sitt. |
17. | Svikull er víghestur til sigurs, með ofurafli sínu bjargar hann ekki. |
18. | En augu Drottins hvíla á þeim er óttast hann, á þeim er vona á miskunn hans. |
19. | Hann frelsar þá frá dauða og heldur lífinu í þeim í hallæri. |
20. | Sálir vorar vona á Drottin, hann er hjálp vor og skjöldur. |
21. | Já, yfir honum fagnar hjarta vort, hans heilaga nafni treystum vér.Miskunn þín, Drottinn, sé yfir oss, svo sem vér vonum á þig. |
22. | Miskunn þín, Drottinn, sé yfir oss, svo sem vér vonum á þig. |
← Psalms (33/150) → |