← Psalms (31/150) → |
1. | Til söngstjórans. Davíðssálmur. |
2. | Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis, lát mig aldrei verða til skammar. Bjarga mér eftir réttlæti þínu, |
3. | hneig eyru þín til mín, frelsa mig í skyndi, ver mér verndarbjarg, vígi mér til hjálpar. |
4. | Því að þú ert bjarg mitt og vígi, og sakir nafns þíns munt þú leiða mig og stjórna mér. |
5. | Þú munt draga mig úr neti því, er þeir lögðu leynt fyrir mig, því að þú ert vörn mín. |
6. | Í þínar hendur fel ég anda minn, þú frelsar mig, Drottinn, þú trúfasti Guð! |
7. | Ég hata þá, er dýrka fánýt falsgoð, en Drottni treysti ég. |
8. | Ég vil gleðjast og fagna yfir miskunn þinni, því að þú hefir litið á eymd mína, gefið gætur að sálarneyð minni |
9. | og eigi ofurselt mig óvinunum, en sett fót minn á víðlendi. |
10. | Líkna mér, Drottinn, því að ég er í nauðum staddur, döpruð af harmi eru augu mín, sál mín og líkami. |
11. | Ár mín líða í harmi og líf mitt í andvörpum, mér förlast kraftur sakir sektar minnar, og bein mín tærast. |
12. | Ég er að spotti öllum óvinum mínum, til háðungar nábúum mínum og skelfing kunningjum mínum: þeir sem sjá mig á strætum úti flýja mig. |
13. | Sem dáinn maður er ég gleymdur hjörtum þeirra, ég er sem ónýtt ker. |
14. | Ég heyri illyrði margra, _ skelfing er allt um kring _ þeir bera ráð sín saman móti mér, hyggja á að svipta mig lífi. |
15. | En ég treysti þér, Drottinn, ég segi: ,,Þú ert Guð minn!`` |
16. | Í þinni hendi eru stundir mínar, frelsa mig af hendi óvina minna og ofsækjenda. |
17. | Lát ásjónu þína lýsa yfir þjón þinn, hjálpa mér sakir elsku þinnar. |
18. | Ó Drottinn, lát mig eigi verða til skammar, því að ég ákalla þig. Lát hina guðlausu verða til skammar, hverfa hljóða til Heljar. |
19. | Lát lygavarirnar þagna, þær er mæla drambyrði gegn réttlátum með hroka og fyrirlitningu. |
20. | Hversu mikil er gæska þín, er þú hefir geymt þeim er óttast þig, og auðsýnir þeim er leita hælis hjá þér frammi fyrir mönnunum. |
21. | Þú hylur þá í skjóli auglitis þíns fyrir svikráðum manna, felur þá í leyni fyrir deilum tungnanna. |
22. | Lofaður sé Drottinn, því að hann hefir sýnt mér dásamlega náð í öruggri borg. |
23. | Ég hugsaði í angist minni: ,,Ég er burtrekinn frá augum þínum.`` En samt heyrðir þú grátraust mína, er ég hrópaði til þín.Elskið Drottin, allir þér hans trúuðu, Drottinn verndar trúfasta, en geldur í fullum mæli þeim er ofmetnaðarverk vinna. [ (Psalms 31:25) Verið öruggir og hughraustir, allir þér er vonið á Drottin. ] |
24. | Elskið Drottin, allir þér hans trúuðu, Drottinn verndar trúfasta, en geldur í fullum mæli þeim er ofmetnaðarverk vinna. [ (Psalms 31:25) Verið öruggir og hughraustir, allir þér er vonið á Drottin. ] |
← Psalms (31/150) → |