← Psalms (30/150) → |
1. | Musterisvígsluljóð. Davíðssálmur. |
2. | Ég tigna þig, Drottinn, því að þú hefir bjargað mér og eigi látið óvini mína hlakka yfir mér. |
3. | Drottinn, Guð minn, ég hrópaði til þín og þú læknaðir mig. |
4. | Drottinn, þú heimtir sál mína úr Helju, lést mig halda lífi, er aðrir gengu til grafar. |
5. | Syngið Drottni lof, þér hans trúuðu, vegsamið hans heilaga nafn. |
6. | Andartak stendur reiði hans, en alla ævi náð hans. Að kveldi gistir oss grátur, en gleðisöngur að morgni. |
7. | En ég uggði eigi að mér og hugsaði: ,,Aldrei skriðnar mér fótur.`` |
8. | Drottinn, af náð þinni hafðir þú gjört bjarg mitt stöðugt, en nú huldir þú auglit þitt og ég skelfdist. |
9. | Til þín, Drottinn, kallaði ég, og Drottin grátbændi ég: |
10. | ,,Hver ávinningur er í dauða mínum, í því að ég gangi til grafar? Getur duftið lofað þig, kunngjört trúfesti þína? |
11. | Heyr, Drottinn, og líkna mér, ó Drottinn, ver þú hjálpari minn!``Þú breyttir grát mínum í gleðidans, leystir af mér hærusekkinn og gyrtir mig fögnuði, [ (Psalms 30:13) að sál mín megi lofsyngja þér og eigi þagna. Drottinn, Guð minn, ég vil þakka þér að eilífu. ] |
12. | Þú breyttir grát mínum í gleðidans, leystir af mér hærusekkinn og gyrtir mig fögnuði, [ (Psalms 30:13) að sál mín megi lofsyngja þér og eigi þagna. Drottinn, Guð minn, ég vil þakka þér að eilífu. ] |
← Psalms (30/150) → |