← Psalms (29/150) → |
1. | Davíðssálmur. Tjáið Drottni vegsemd, þér guðasynir, tjáið Drottni vegsemd og vald. |
2. | Tjáið Drottni dýrð þá er nafni hans hæfir, fallið fram fyrir Drottni í helgum skrúða. |
3. | Raust Drottins hljómar yfir vötnunum, Guð dýrðarinnar lætur þrumur drynja, Drottinn ríkir yfir hinum miklu vötnum. |
4. | Raust Drottins hljómar með krafti, raust Drottins hljómar með tign. |
5. | Raust Drottins brýtur sundur sedrustré, Drottinn brýtur sundur sedrustrén á Líbanon. |
6. | Hann lætur Líbanonfjöll hoppa eins og kálfa og Hermonfjall eins og ungan vísund. |
7. | Raust Drottins klýfur eldsloga. |
8. | Raust Drottins lætur eyðimörkina skjálfa, Drottinn lætur Kadeseyðimörk skjálfa. |
9. | Raust Drottins lætur hindirnar bera fyrir tímann og gjörir skógana nakta, og allt í helgidómi hans segir: Dýrð! |
10. | Drottinn situr í hásæti uppi yfir flóðinu, Drottinn mun ríkja sem konungur að eilífu.Drottinn veitir lýð sínum styrkleik, Drottinn blessar lýð sinn með friði. |
11. | Drottinn veitir lýð sínum styrkleik, Drottinn blessar lýð sinn með friði. |
← Psalms (29/150) → |