← Psalms (28/150) → |
1. | Davíðssálmur. Til þín, Drottinn, hrópa ég, þú bjarg mitt, ver eigi hljóður gagnvart mér. Ef þú þegir við mér, verð ég sem þeir, er til grafar eru gengnir. |
2. | Heyr þú á grátbeiðni mína, er ég hrópa til þín, er ég lyfti höndum mínum til Hins allrahelgasta í musteri þínu. |
3. | Hríf mig eigi á burt með óguðlegum og með illgjörðamönnum, þeim er tala vinsamlega við náunga sinn, en hafa illt í hyggju. |
4. | Launa þeim eftir verkum þeirra, eftir þeirra illu breytni, launa þeim eftir verkum handa þeirra, endurgjald þeim það er þeir hafa aðhafst. |
5. | Því að þeir hyggja eigi á verk Drottins né handaverk hans, hann rífi þá niður og reisi þá eigi við aftur. |
6. | Lofaður sé Drottinn, því að hann hefir heyrt grátbeiðni mína. |
7. | Drottinn er vígi mitt og skjöldur, honum treysti hjarta mitt. Ég hlaut hjálp, því fagnar hjarta mitt, og með ljóðum mínum lofa ég hann. |
8. | Drottinn er vígi lýð sínum og hjálparhæli sínum smurða.Hjálpa lýð þínum og blessa eign þína, gæt þeirra og ber þá að eilífu. |
9. | Hjálpa lýð þínum og blessa eign þína, gæt þeirra og ber þá að eilífu. |
← Psalms (28/150) → |