← Psalms (27/150) → |
1. | Davíðssálmur. Drottinn er ljós mitt og fulltingi, hvern ætti ég að óttast? Drottinn er vígi lífs míns, hvern ætti ég að hræðast? |
2. | Þegar illvirkjarnir nálgast mig til þess að fella mig, þá verða það andstæðingar mínir og óvinir, sem hrasa og falla. |
3. | Þegar her sest um mig, óttast hjarta mitt eigi, þegar ófriður hefst í gegn mér, er ég samt öruggur. |
4. | Eins hefi ég beðið Drottin, það eitt þrái ég: Að ég fái að dveljast í húsi Drottins alla ævidaga mína til þess að fá að skoða yndisleik Drottins, sökkva mér niður í hugleiðingar í musteri hans. |
5. | Því að hann geymir mig í skjóli á óheilladeginum, hann felur mig í fylgsnum tjalds síns, lyftir mér upp á klett. |
6. | Þess vegna hefst upp höfuð mitt yfir óvini mína umhverfis mig, að ég með fögnuði megi færa fórnir í tjaldi hans, syngja og leika Drottni. |
7. | Heyr, Drottinn, ég hrópa hátt, sýn mér miskunn og svara mér! |
8. | Mér er hugsað til þín, er sagðir: ,,Leitið auglitis míns!`` Ég vil leita auglitis þíns, Drottinn. |
9. | Hyl eigi auglit þitt fyrir mér, vísa þjóni þínum eigi frá í reiði. Þú hefir verið fulltingi mitt, hrind mér eigi burt og yfirgef mig eigi, þú Guð hjálpræðis míns. |
10. | Enda þótt faðir minn og móðir hafi yfirgefið mig, tekur Drottinn mig að sér. |
11. | Vísa mér veg þinn, Drottinn, leið mig um slétta braut sakir óvina minna. |
12. | Ofursel mig eigi græðgi andstæðinga minna, því að falsvitni rísa í gegn mér og menn er spúa rógmælum. |
13. | Ég treysti því að fá að sjá gæsku Drottins á landi lifenda!Vona á Drottin, ver öruggur og hugrakkur, já, vona á Drottin. |
14. | Vona á Drottin, ver öruggur og hugrakkur, já, vona á Drottin. |
← Psalms (27/150) → |